Skinfaxi - 01.12.1909, Blaðsíða 4
20
SKINFAXI
SKINFAXI,
mánaðarblað U. M. F. í. kemur
út í Hafnarfirði og kostar 1 kr.
árgangurinn.
Útgefandi:
Sambandsstjórn II. M F. í.
Ritstjórn:
Helgi Vallýsson, fíuðm. Hjaltason.
Pantanir og blaðgjöld sendist
afgreiðslu
„Skinfaxa"
Haf narfirði.
aðstoðar við frá hálfu ungmennafélaganna
fiþar sem um mikilsvert mái er að ræða,
bannlagamálið, og hina meenu mótspyrnu,
«r það hefir mætt hjá andbanningum svo-
nefndum.
Mun mega teija það víst, að allur þorri
ungmennafélaga sé aðflutningsbanninu
hiyntur, þótt eigi starfi þau að bindindi á
annan hátt en þann að hafa gert það að
inngönguskilyiði í íéiögin. Hefir það auð-
vitað mjög víðtæk áhrif og styður mjög
Æflugt alt bindindisstarf. Enda stefnir og
ailur íþrótta- og starfsáhugi ungmennaíéiag-
;anna í þá hina sömu átt.
Og eitt er víst: eí leitað yrði á ný
vilja íslendinga í bindindismálinu, bæði
eidri manna og yngri, t. d. allra eldri en
18 ára, með almennri atkvæðagreiðslu, þá
-mundi sú verða raunin, að lannlögin fengju
öflugt fyigi ungmennafélaganna.
Yiðvíkjandi því að taka bannlagamálið á
stefnuskrá sína, — eins og allur fjöldi
goodtemplara helst mundi óska, — geta
ungmennafélögin eklcert ákveðið um það
að svo stöddu, og verður það mál að koma
fyrir sambandsþing áður. En aftur á móti
geta félög vor tekið mál þetta til umræðu
sem fyrst, leitað álits félagsmanna, og
birt síðan fundarályktanir sínar í blöðunum
-t. d. í „Skinfaxa." Mundi máli þessu
stuðningur mikiil hvert íélag, er teldi sig
hlynt aðflutningsbanninu, og áliti bannlög-
in góð og gagnleg landi og þjóð.
H. V.
Skíðafar.
— 0--
„Skinfaxi" ætlar við og við að flytja smá-
kafla úr „Skíðabók" þeirri, sem H. .V er
að semja og getið hefir verið um áður.
Hefir þegar verið skýrt lítillega frá skíða-
smíði og skíðaböndum. Mönnum til skiln-
ingsauka og uppörfunar í máli þessu birt-
ist hér dálitill kafli eftir frægasta skíða-
mann á Norðurlöndum, Dr. Friðþjóf Nan-
sen ; úr bók hans „ Yfir Grœnland á skíð-
um.“ — Áhugi hans á skíðafari og íþrótta-
gildi þess er feikna mikill og hefir fylgt
honum frá fyrstu bernskuárum hans.
Hann segir á þessa leið:
„---------Skíðafar er þjóðlegust allra
norskra iþrótta. Dýrðleg íþrótt. Svo að
eigi nokkur íþrótt skilið að heita íþrótt
íþróttanna, þá er það óefað það. Ekkert
annað styrkir svo líkamann og herðir og
stælir vöðvana sem það, ekkert annað eykur
manni snarræði lipurð og skjótleik allau
fremur en það, ekkert annað stælir vilj-
ann og hreinsar huga manns eins og skíða-
far. Er hægt að hugsa sér nokkuð hollara
og hreinna en að binda á sig skíði sín
fagran og kaldan vetrardag og halda svo til
skógar? Er hægt. að hugsa sér nokkuð
fegurra og tignarlegra en norræna vetrar-
náttúru, er snær liggur álnardjúpur mjall-
hvítur og mjúkur yfir skógi og.ásum? Er
hægt að hugsa sér nokkuð frjálsmannlegra
og meira eggjandi en að steypa sér eins
og vængfimur valur niður eftir skógivöxn-
um hlíðum, er vetrarkuldi og kvistir greni-
trjánna þjóta og leika um andlit manns,
og augu, heili og vöðvar eru vakandi á
varðbergi í eggjandi eftirvænting, albúnir