Skinfaxi - 01.12.1909, Side 6
22
SKINFAXI
Þá er og hugsað um að koma á fót
sundkenslu í félaginu, ef auðið er.---“
Þetta eru góðar fréttir og gleðilegar af
ungu félagi. Er hér óefað rétt af stað farið
í skógræktarmálinu: að vernda og bœia það,
sem til er af íslenskum trjátegunduni, og
gera jafnframt tilraunir með þær útlendu teg-
undir, sem líklegastar eru. Á þenna hátt
hafa félögin þegar á fyrsta ári gleði og á-
nægju af starfl sínu, því það er meira en
lítið sein kjarr og víðir vex á sumii hverju,
ef friðað er. íslenskur reynir óx t. d. hjá
mér í sumar liðuga 16 þml. á 21/* mánuði,
og var þó gróðursettur seint í vor. Birki
getur og vaxið annað eins á góðum sumr-
um, og gerist, þá fljótt „fögur hlíðin.“
U. M. F. Eeykdœla
í Borgarfirði er ungt fóiag og efnilegt mjög,
þótt eigi telji jiað nema 40 fólaga, og skýrir
„Fjórðungsblað bunnlendingafjórðungs“ frá
starfi þess á þessa leið:
— — — — — — Þeir hafa ráðist í
71
stórt og mikið fyrirtæki, þar sem þeir hafa
reist sér ailvandað fundarhús á síðastliðnu
sumri. Stendur það því sem næst á miðju
svæði því, er félagið nær yfir og mun með-
fram hafa verið reist þar i því skyni að
gera mönnum hægari fundarsóknirnar.
Húsið er 12 áln. að lengd, 8 áln. á breidd
og 4 álna vegghæð. Það er úr steinsteypu,
og kostaði uppkomið 1100 kr. Félagsmenn
sjálfir, bæði konur og karlar, hafa unnið
að húsagerðinni með kappi og áhuga t. d.
öll einn dag saman í einu.
Hlutaveltu hefir féiagið haldið til ágóða
þessu fyrirtæki, og gaf hún af sér í hrein-
ar tekjur um 300 kr. Fá hafa þeir einnig
fengið land mikið hjá húsi sínu, og ætla
að rækta það á ýmsa lund. Dag þann er
þeir höfðu hlutaveituna, fengu þeir og um
50 kr. íyrir hestaveymslu í girðingu á landi
sínu.
Af öðrum framkvæmdum fél. þessa má
nefna þær, að það hafði í sumar sundnám
á tveímur stöðum í sveitinni, á Sturlureykj-
um fyrir karlmenn, en á Kleppjárnsreykjunr
fyrir kvenmenn.
U. M. F. Afturelding í Mosfellssveit.
Félag þetta gekk í Sambandið í sumar.-
Pað var stofnað 11. apr. siðastl. með 49
meðlimum, og virðist ætla að verða gott
fólag. í félagi þessu starfa tveir flokkar,
glimuflokkur og sundflokkur, og hafa fé-
lagsmenn (karlmennirnir) gert sundlaug v
Yarmá. (Eftir skýrslu til fjórðungsstjórnar)..
Félagsmenn voru í ágúst alt að því 50.
(„Fjórðungsbl. Sannl.fj.u)
U. M. F. Máni
í Hoinafirði hefir gert leikvöll allmikinn,.
sléttað hann og gert að túni. H&fa þeir
i hyggju að gróðursetja tré fram með hon-
um á alla vegu. — Hafa félagsmenn þar
sýnt mikinn dugnað og áhuga, enda þótt
langur væri vegurinn fyrir suma þeirra til
vinnunnar, 3gja tíma reið.
(„ Fjörðungsbl. Sunnl.fj. “)
U. M. F. Kennaraskólans
í Reykjavík er eitt þeirra þriggja félaga
(U. M. F. Flensborgarskóla i Hafnar-
firði og U. M. F. Gagnfræðaskólans á Akur-
eyri), sem víðtækust áhrif hefir út um
sveitir landsins, þar sem nemendur dreifast
síðar út um land alt og starfa að hugsjón-
um þeim og áhugamálum, er þá hafa hrifið
mest og sterkast á námsárum þeirra, er
þeir voru að búa sig undir lífið. Má þaðan
mikils góðs vænta, er mentun og álvugi
fara saman.
U. M. F. Kennaraskólans var stofnað L
fyrra haust, og vóru stofnendur 30, en við
skólauppsögn 44. — Fór þar eins og á
öðrum skólum þeim. er ungm.félög starfa
við, að sumir nemendur vóru utanféiags og_
snerust jafnvel á móti því, og er það ilt að
vita, þar eð nepiendur þess skóla eiga síð-
armeir að verða alþýðufræðendur og leið-