Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.10.1911, Blaðsíða 5

Skinfaxi - 01.10.1911, Blaðsíða 5
SKINFAXI 77 Með ])ví fyrst og fremst að leggja fé í girðingu, plöntur og frœ. En svo vill svo vel til, að dugleg sambandsfélög eru i ná- grenni við skóglendið, og ennfremur nokk- ur félög sem væntanlega ganga í samband- ið, og gætu ])au efalaust að nokkru unn- ið þar. Þá er og ekki ólíklegt að einhverj- ir væru þeir meðal Ungmennafélaga, sem ættu þess kost, að safnast þarna saman til skóggræðslu á vorin, þó lengra væru að komnir. Gjöfin er stærsta viðurkenningin sem Ungmennafélögin hafa hiotið, hún sýnir best hvert traust góðir menn bera til þeirra, og hverjar vonir fylgja þeim. Og hún er holl gjöf, þvi að hún reynir á þolrifin, sannar hvort hugur og hönd fylgir, þegar undir er skrifað, að vinna að sæmd og þrifurn þjóðarinnar i öllu þvi, sem þjóðlegt er, gott og gagnlegt. Því er að sýna að vér séum traustsins makleg. En þá fyrst er Tryggva Gunnarssyni fullþökkuð gjöfin, er landssvæði þetta stend- ur með þeim fylstum blóma, er Island ber í skauti sínu. Guðbrandur Magnússon. Sambandsþingið. Þess hefir ei enn verið getið, nema að litlu i Skinfaxa. Hér verður heldur eigi skráð nein nákvæm fundargjörð, eingöngu getið úrslita hinna helztu mála. Margt af því sem þar var gert er og þegar komið ung- mennafélöguin fyrir sjónir, t. d. sambands- lögin og fjárlögin. Þingið sóttu 13 fulltrúar. Sunnlending- ar 9, Norðlendingar 3, og Austfirðingur 1. Þingið stóð yfir 3 daga. Mestan tíma tóku að sjálfsögðu, sam- bandsmálið og fjárlögin, er semja ber sam- kvæmt hinum nýju sambandslögum. Sambandslaganna verður ei getið hér, því að allir geta haft eigin sjón, þar sem menn geta fengið þau hjá fjórðungsstjór- unum. Um fjárlögin skal þess getið að veittar eru af sambandssjóði, livert árið þessara þriggja sem fjárlögin ná yfir, 500 kr. til Sunnlendingafjórðungs, 225 kr. til Norðlendingafjórðungs og 125 kr. til Aust- firðingafjórðungs. Er ætlast til að fjórð- ungsþing ráðstafi því fé. Til „Skinfaxa“ eru heimilaðar 200 kr. fyrsta árið, 120 kr. annað árið, og 100 kr. þriðja árið. Búist við að sá liður verði ef til vill eigi notað- ur allur og smá minki og hverfi. Kostnaður við sambandsþingið varð ná- lega 500 kr. Varð það að langniestu leyti ferðakostnaður fulltrúanna sem kosnir voru. Óhætt mun að fullyrða að, svo er frá fjár[ögunum gengið að fremur má bú- ast við meiri tekjum, en minni gjöldum en þar er áætlað. Það er öfium skiljanlegt að þegar þannig eru samin fjárlög í fyrsta sinni verður samt eigi áætlað nákvæmlega, enda verður að skoða þessa fyrstu fjár- lagasmíð í sunium atriðum meir sem bend- ingu fyrir sambandsstjóra en sem bind- andi haft. Ganga má út frá því að á næsta sambandsþingi verði töluvert fé i sjóði fram yfir kostnað við þing. Þegnskylduvinnumálið hafði fengið all - mikinn undirbúning í Sunnlendingafjórð- ungi, en annarstaðar lítinn. Með því að tíminn var naumur gerði sambandsþingið ekkert i því annað en að kjósa nefnd er leggi tillögur sínar fyrir öll U. M. F. lands- ins. Voru í þá nefnd kosnir menn fylgj- andi báðum þeim aðalskoðunum i málinu er fram hafa komið hér syðra. íþróttamál homu til umræðu. Hugmynd um að sameina öll Ungmennafélög í sam- band er sérstaklega leggöi stund á íþróttir og útbreiddi þær. Hugmyndin var lítið undirbúin, og sömuleiðis stóð mönnum ótti af að slíkt iþróttasamband yrði keppi- nautur sambandsins og var því engin á- kvörðun tekin í málinu. Boð um hluttöku í ungmennamóti í Færeyjum barst á þingið. Tíminn var svo naumur að sambandsþing gat enga ákvörð-

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.