Skinfaxi - 01.04.1912, Blaðsíða 8
32
SKINFAXI
rit, sem er þjóðargersemi og að öllu merki-
legt: „Lýsing Islands“ eftir Þorvald pró-
fessor Thoroddsen. Bókmentafélagið gef-
ur hana út, og eru komin tvöbindi(afþrem?)
f þeim er lýsing af láði og legi, veður-
áttu, gróðrarfari og dýralífi í sjó og á
landi. Fjöldi góðra mynda fylgir til skýr-
ingar, og mun það þó vera helsti galli rit-
sins, hve fátt er af rnyndum og uppdrátt-
um; einnig verð ég að telja það galla, að
gamla lengdarmálið (míla, fet o. s. frv.)
er alstaðar notað, en í svona riti var sjálf-
sagt að nota metramálið, og sú ástæða
höfundarins (II, bls. 592), að alþýða muni
verða lengi að átta sig á og venjast metra-
málinu, er einkis virði. Hitt mun sann-
ast, að eftir fá ár verður metramálið orð-
ið alþýðu jafntamt sem álnamálið, enda er
þetta rit engin dægurtluga, og mun verða
tesið lengur en þennan mannsaldur.
Að sjálfsögðu verða menn að hafa landa-
bréf við lesturinn, til þess að hafa ritsins
full not, og telur höf. bestan til þess upp-
<irátt sinn með jarðfræðislitum, frá 1901.
Þau ungmennafélög, sem eiga vísi til
Lókasafns, ættu að reyna að eignast þetta rit.
Sigurður Vigfússon.
Félagsmál.
Tíý samtíaiidsfélög.
Ungmennafélögunum vex óðum fylgi hjá
þjóðinni, enn hafa 5 félög gengið í sam-
bandið, og von á fleirum innan skamms.
Félög þessi eru:
1. Ungmennafélag Skeiðahrepps i Ár-
nessýslu. Það var stofnað 24. maí 1908,
■og hefir n ú 40 félaga.
2. [J. M. F. Egill Skallagrímsson í Mýra-
sýslu, stofnað 19. júní 1910, hefir nú 50
félaga.
3. U. M. F. Önfirðinga i Önundarfirði,
stofnað í des. 1908, hefir nú 65 félaga.
4. U. M. F. Hekla í Rangárvallasýslu,
hefir 42 félaga.
5. U. M. F. Vorblóm á Ingjaldssandi í
Vestur-ísafjarðarsýslu, stofnað 28.maí 1908,
hefir 28 félaga. Fjórðungsstjórnin.
Ungmennafélag Hvollirepps
heitir ungmennafélag sem stofnað var í
Hvolhrepp i Rangárvallasýslu 17/12 1910.
I stjórn þess voru kosnir á stoínfundi:
formaður Óskar Thorarinsen, skrifari Skúli
Thorarinsen og gjaldkeri Ólafur Jónsson.
A aðalfundi félagsins, sem haldinn var
9/12 1911, var Bergsteinn Kristjánsson kos-
inn formaður, en að öðru Ieyti var stjórn-
in endurkosin. Félagið hefir nú um 30
meðlimi, alt ungt fólk, og heldur fundi oft-
ast einu sinni i mánuði. Það mun hafa
í hyggju að ganga i samband U. M. F. I.
innan skamms. Meðlimur.
U. M. P. Haukur
var ársgamall 10. febr. síðasliðinn. En
kvöldið fyrir afmælisdaginn hélt félagið
skemtisamkomu i Mið-Leirárgörðum; þar
er fundarstaður þess. Skemtu menn sér
vel með söng, dans, ræðuhöldum o. íl.
Félagsmenn voru 23; höfðu þeir boðið all-
mörgum kunningjum sínum, svo fundar-
menn voru um 60. Tólf nýir meðlimir
bættust við, og Þórunn Sivertsen i Höfn
var kosin heiðursfélagi. Félagið hefir
ákveðið að byggja sér fundabús úr stein-
steypu í vor. Húsið verður 12X^ ál. að
stærð. Margir spá illa fyrir þessu fyrir-
tæki, en félagsmenn eru vongóðir, trúa
á samheldni sína og aðstoð góðvina ut-
an félagsins.
Heiðursg-jöf.
6. febr. var Sæmundur Friðriksson kenn-
ari á Stokkseyri sæmdur heiðursgjöf, silf-
urskildi, af glímumönnum á Stokkseyri, í
launaskyni fyrir ágæta starfsemi glímulist-
inni til eflingar.
Sæmundur er meðlimur U. M. F. St.
og hefir verið glímukennari þeirra i þrjú
síðastliðin ár.
Félagsprentsmiðjan.