Skinfaxi - 01.11.1913, Qupperneq 4
84
SKINFAXI
SKINFAXI
— mánuðarrit XI. M F L — kemur út i Reykjavík
og kostar 1 kr. árgangurinn, erlendis 1,50 kr.
RITSTJÓRI :
Jónas Jónsson frá Hriflu.
Skólavörðustig 35.
Afgreiðslumaður:
Bjarni Þ. Magnússon Skólavörðustig 6 B.
Ritnetnd:
Agúst Jósefsson, Guðbrnndur Magnússon,
Tr. Þórhallsson.
kunnugt, ástir og ógæfa Ragnheiðar dóttur
Brynjólfs biskups í Skálholti.
Erfitt er eða ómögulegt, að bera um
gildi ]iessa skáldverks fyr en ]>að er alt kom-
ið, sem verða mun að ári. En sú er sök
þess, að skáldið virðist halda fram taum-
lausu sjálfstæði, alveg hömlulausu frelsi,
og að það sé hugsjón hans og framtíðar-
draumur. I fyrri hlutanum eru forsend-
urnar komnar, en í síðari hlutanum verð-
ur skáldið að gera grein fyrir, hvað leiða
hlýtur af þeirri miklu frelsisgjöf.
En urn aðra hlið þessa kvæðabálks þarf
ekki að vera myrkur í máli. Hann er
snildarlega kveðinn, fjöldi af gullfallegum
kvæðum; formsnildin, léttleikinn og mynd-
auðgin á hæsta stigi. Og ekki dregur það
úr eftirtekt lesarans, að víða er reitt til
höggs, og skotið örvum, bæði hvössum og
eitri-fáðum.
Litlu síðar sendi Guðm. Guðmundsson
annan Ijóðabálk á markaðinn. Það er
rírna um kristnitökuna á Alþingi árið 1000
og heitir Ljósaskifti. Það er mjög undar-
arlegt skáldverk, fallegur búningur, fallegt
rím, gott efni og siðgóður blær yfir allri
frásögninni. Og þó er bókin lítið hrífandi.
Manni finst ósjálfrátt, að skáldið hafi í þetta
sinn ort til að fullnægja kröfum þingmanna
sumra, fremur en af innri hvöt. En andi
skáldsins vinnur fyrir gíg í skylduvinnu.
Honum er farið eins og segiríeinu kvæði
Goethes:
Eg kveð sem fuglinn kveður sá
Er kyrrum býr í skógum.
Mikil rimma stóð um í þinginu, hvort
Einari Hjörleifssyni væri betur launuð rit-
störf sín með 83 kr. 33 au. á mánuði,
eða með 100 kr. En í þinglok svaraði
Einar með að senda þjóðinni tvö rnyndar-
leg skáldrit: Leikritið Lénharð fógeta
og fimm smásögur, er hann nefnir Frá
ýmsum hliðum.
Lénharður er annað í tölunni af ágætis
leikritum íslenskum. Hið fyrsta var Fjalla-
Eyvindur, er svo snildarlega sýnir mun-
inn á sálarlífi karla og kvenna, hversu
konanerfúsað fórna öllu : ættingjum, vin-
um, virðingu, frelsi, eignum, þœgindum,
og voninni um eilífa sáluhjálp fyrir ást
þess nianns er hún ann af öllum hug. En
að karlmaðurinn, þó að hann sé drengur
góðureins og Eyvindur, þarf meira en ástina
eina, og þráir samhliða henni önnur gæði
lífsins báðum megin grafar. í Lénharði
er Ijósinu ekki svo mjög beint á einn stað,
en raktir margir þræðir og glöggir. Bókin er
rituð af miklum og djúpum skilningi á
mannlegu lífi.
Þrjár af hinum fimm sögum í „Frá ýms-
um hliðum“, hafa birst áður í tímaritum.
Það er fengur i þeim, þó þær jafnist ekki
á við helstu eldri smásögur höfundarins.
Þá er mjög einkennileg saga, riluð í sum-
ar, sem heitir Anderson. Má vera að ein-
hverjum sparsemdarmanninum á þingi
fljúgi i hug þessi visa, er hann heyrir um
Þorgrím á Eyri:
Enginn skyldi skáldin styggja,
skæð er þeirra hefnd.
Annars mun Þorgrímur fremur eiga við
vissa tegund manna, eða vissan hugsunar-
hátt, heldur en einstakan mann.
Seinast en ekki sist verður að telja
Hrannir Einars Benediktssonar. Það er
þriðja ljóðasafn skáldsins, og ekki einung-
is hið besta af verkum hans, heldur eitt
af fremstu snildarverkum í islenskum bók-