Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.1914, Blaðsíða 6

Skinfaxi - 01.04.1914, Blaðsíða 6
48 SKTNFAXI. vi5 að þessir timar séu hinir sömu um land alt, J)á geta ekki fáir menn gengt þvi svo vel sé. Það þarf því ekki að gera ráð fyrir að neitt samband yrði svo lítið, að því veitti af sérstökum íþróttakennara fyrir sig, enda ætti ekki að þurfa vera hörgull á þeim. Með það þyrfti því enginn árekstur að verða. — Sama er að segja um fyrir- Jestrana. Eg hygg að tala þeirra þuríi alls ekki að vera eins takmörkuð, og sr. Tr. Þ. virðisl ætla, og skal eg t. d. minn- ast á grein, sem hann hefir áður ritað í þetta blað, þar sem hann bendir ungm.- félögum á að hafa meiri samvinnu við prestana en verið hefir. Eg er einmitt viss um að oft væri hægt að komast að „tækifæriskaupum“ á góðum fyrirlestrum hjá innan- og utanhéraðsmönnum fyrir stjórnir er nálægar væru og kunnugar eru í héraðinu. En væru nú félögin nauðsynlega bundin við einn mann eða fáa, þá er auðvitað að hann eða þeir yrðu að haga ferðum sínum á milli sambandanna eftir sínum hentugleikum, svo að þar yrði sami áreksturinn og nú, að ekki gætu öll félögin fengið hann á þeim tíma, er þau helst kysu. Og yíirleitt finst mér það óskiljan- legt, að stjórn sú, er skipuð er nákunn- ugum mönnum og situr í miðju héraði, eigi örðugra með að koma störfum sambands- félaga heppilegafyrir, helduren önnur sem i órafjarlægð situr, o. s. frv.. skipuð þeim mönnum, sem aldrei hafa stigið fæti sínum i það hérað. 4. ástæðan: „Engu verulegu fyrirtæki verður til Ieiðar komið, því að nauðalítið fé kemur hver stjórn til með að hafa handa á milli." Ekki er ])að ætlan mín sem höf. nefn- ir fyr í greininni, að sambönd þessi fái „ekkert úr sambandssjóði“, beldur álít eg sjálfsagt að milli þeirra skiftist það fé, sem fjórðungs-samböndin hefðu ella fengið. Auðvitað bútast það niður með því móti, en hvað er gert við það nú ? Er það ekki hútað niður til íþróttakenslu, fyrir- lestra o. þ. h. Jú. — En er þá ekkr sama hvort það er „bútað niður“ á milli' félaga í fjórðungssamböndum eða héraðs^ samböndum til nákvæmlega hins sama? Væri það aftur á móti eitthvað verulegt sem félögin eða samböndin í heild sinni vildu framkvæma, þá stæði sambandssjóður eftir sem áður opinn til þess. 5. ástæðan. „Sambandið verður miklu lausari og óverulegra en verið hefir.“ — Það álít eg fjarri sanni, að nokkurt sam- band geti orðið „lausara og óverulegra“ ef í því eru margar smádeildir þar sem hin einstöku félög eru margbundin hvert öðru með ýmiskonar samstörfum og sameigin- legum hagsmunum og viðkyuningu, heldur en ef það er myndað af fáum deildum, sem þenja sig yfir svo stór svæði að mörg félög þeirra vita ekki hvert af öðru nema að nafninu til, eftir skýrslum og skrám, hvað þá að þau geti átt nokkuð saman við þau að sælda. Og ef nú þau undur skyldu ske, að þetta fyrirkomulag Ieiddi af sér samband ungm.félaga í Borgarfirði og Húnavatns- sýslu, eins og höf. virðist hálfsmeykur við, þá má reiða sig á að til þess lægju svo knýjandi ástæður, að ekkert vit væri fyrir félagsskapinn að standa í vegi fyrir því, með öðru óþarfara sambandi. 6. ástæðan er sú fullyrðing höf. og skoðanabræðra hans, að með þessu móti yrðu afskektustu félögin út undan, „þeim yrði sparkað úr sambandinu“. — Til þess að sjá það, hve mikill veigur er í þessari ástæðu, verður að athuga það, að orsök þess, að einstök félög geta eigi not- að sér kosti sambandanna er venjulega sú, að þau eru oílangt frá miðstöðvum sambandanna t. d. aðsetrum stjórnanna, En þegar samböndunum fjölgar, þá hlýt- ur miðstöðvum þeirra líka að fjölga; en auðvitað ekki öllum á sama staðnum, held- ur víðsvegar út um landið. Þess vegna hljóta öll félögin, sem afskekt voru áðurT

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.