Skinfaxi - 01.06.1914, Page 9
SKINFAXI
79
aðallega að sjá, hvað þar væri um að vera
í iðn hans.
Ólafur kom heim í fyrra sumar eftir
tveggja ára framhaldsnám erlendis. Hann
er kornungur maður, fæddur á Akranesi
15. júni 1889, en hefir þó komið á fót
veglegri ljósmyndastofu og mun nú hafa
mest að gera af öllum i sinni iðn hér á
landi.
Ólafur á marga þá kosti er ungum
mönnum eru notadrjúgir, áhuga, dugnað,
reglusemi, og glaðlyndi svo mikið, að
hann verður jafnan hrókur alls fagnaðar
í hóp kunningjanna. ^ **
Fjórðungsþing
Ungmennafélags Norðlendinga
var haldið á Akureyri 6. og 7. mars s. 1.
undir forustu fjórðungsstjóra Jakobs H.
Líndals.
Þessar voru helstu gerðir þingsins og
samþyktir:
I skógrcektarmálinu voru þessar tillög-
ur samþyktar:
1. Ungmennafélögin, sem enn hafa ekki
komið upp hjá sér vel friðuðum trjáreit,
séu hvött til að hefjast handa um fram-
kvæmd í þessu máli.
2. Ungmennafélögin séu hvött til að koma
á hjá sér föstum skógræktardegi eða
dögum eftir reglum er þau svo nánar
ákveða, og skorar þingið á fjórðungs-
stjórn að semja fyrirmynd að reglugerð
fyrir skógræktardeginum, er félögin hafi
til hliðsjónar.
3. Ungmennafélögin séu hvött til þess að
leggja áherslu á trjáfræsáningu í trjá-
reitum sínum, svo þau bráðlega geti birgt
sjálf sig og félagaheimilin að trjáplöntum.
Skal þess farið á Jeit við Ræktunarfélag
Norðurlands, að það veiti þeim til þess
ókeypis fræ og leiðbeiningar.
4. Félögin leitist við að leggja sem mest
reynslu og trjáræktavtilraunir Ræktunar-
félags Norðurl. til grundvallar fyrir starfi
sínu. Sé þess farið á leit við Ræktun-
arfélagið, að það láti í té þar til kjör-
inn mann til þess að vera í samráði
við val á trjáræktarstöðum, og semji
hann 1 félagi við félagsstjórnina fastá-
kveðið fyrirkomulag og starfsyfirlit,
sem síðan sé fylgt við starfrækslu trjá-
reitanna. Þau ungmennafélög er þann-
ig rækja skógræktarstarfsemi sína eftir
sérstökum leiðbeiningum frá Ræktunar-
félaginu séu öðrum fremur látin sitja
fyrir skógræktarstyrk úr fjórðungssjóði.
5. Fjórðungsþingið felur stjórninni a5
senda áskorun til landsstjórnarinnar, um
að hún nú þegar hefjist handa um vernd-
un skógleifanna í Leyningshólum í Eyja-
firði, eða veiti fjórðungssambandinu ríf-
Iegan styrk til að koma því máli í fram-
kvæmd.
Tvö félög, Geisli í Aðaldal og Árroð-
inn í Kaupangssveit, sóttu um styrk til
trjáreita sinna og var þeim veittur hann,
sínar 30 kr. hvoru.
íþrótiamál.
1. Þingið samþykti að beita sér eigi fyr-
ir íþróttamóti fyrir Norðlendingafjórð-
ung þetta ár, með þvi landsíþróttamót
ætti að vera i Reykjavik í vor eða sumar.
2. Veittar 20 kr. í verðlaunasjóð og sam-
þykt að koma upp grip fyrir fjórðung-
inn til að keppa um í sundi, og gangi
sá verðlaunagripur frá einum sigurveg-
aranum til annars.
I sambandi við þetta samþykt að reyna
koma á sundmóti á Akureyri fyrir Norð-
lendingafjórðung í sumar, helst í ágúst,
ef þátttaka fæst.
3. Reynt sé að koma á íþróltanámskeiði
á næsta vetri á hentugum stað, svo á-
hugasömum íþróttamönnum ungmenna-
félaganna geti gefist kostur á að ná
þeim fullkomleika í iþróttum, að þeir
geti orðið leiðbeinandi í íþróttum heima
í sínum félögum.
4. Fjórðungsþingið skorar á næsta sam-