Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.06.1914, Qupperneq 10

Skinfaxi - 01.06.1914, Qupperneq 10
80 SKINFAXI bandsþing U. M. F. I. að það leiti sam- komulags við íþróttasamband íslands á þeim grundvelli, að ungmennafélögin fái full þátttökuréttindi í Iþróttasambandinu gegn ákveðnu fjárframlagi frá U. M. F I. til íþróttasambandsins, og sambands- þinginu veitist heimild til að skipa í stjórn íþróttasambandsins tveim mönnum. Fyrirlestra og útbreiðslumál. Fjórðungsþingið sá sér eigi fært að leggja fram fé til fyrirlestra næsta ár, en vildi hvetja ungmennafélögin til þess að afla sér fyrirlestra heima fyrír. Stjórninni var falið að skrifa þeim fé- lögum utan sambandsins er líka stefnu- skrá hafa og ungmennafélögin, og vita hvort þau vildu ekki ganga í sambandið, eða hvaða agnúa þau fyndu á því, að leita eftir samningaleiðum. Sambandslögunum vildi fjórðungsþing ekki láta breyta, en samþykti í sambandi við það mál þingsályktunartillögu svo- hljóðandi: Fjórðungsþingið álítur heimilt að fleiri félög í innbyrðissambandi með sameigin- legri stjórn, er hafi sýslur eða önnur náttúrutakmörk að ummerkjum, geti gengið inn í fjórðungssamböndin sem eitt félag. Þjóðgarður. Flult var erindi um það mál og^þessi tillaga samþykt: Fjórðungsþingið skorar á næsta sam- bandsþing U. M. F. í. að taka til ræki- legrar íhugunar, hvort og á hvern hátt ungmennafélögin geti stutt hugmynd hr. Guðm. Davíðssonar um að koma upp þjóðgarði á þingvöllum. í bannlagamálinu var þessi tillaga samþykt: Fjórðungsþingið lítur svo á, að sæmd íslensku þjóðarinnar liggi við að að- flutningsbannlögin verði ekki fótum troð- in, og skorar því á ungmennafélögin að vernda þau eftir mætti. Um kristindómsástandið á Islandi flutti kennari Jóhann J. Scheving snjalt erindi og var þessi tillaga samþykt út af því máli: Fjórðungsþing Norðlendinga álítur æski- legast, aðungmennafélögin reyni að glæða kristilegt trúarlíf hvert á sínu sviði. Fjármál. Tekjur fjórðungsins áætl. kr. 382,50 Er áætlað að verja þeim þannig: Til fyrirlestra, ógreitt frá f. á. kr. 45,00 Sambandsskattur 1914 (300 fél.)— 45,00 Til íþróttanámsskeiðs ... — 100,00 Til verðlaunasjóðs (sundgrip) — 20,00 Sundmótið .......................— 20,00 Skógræktarmál....................— 90,00 Þings- og stjórnarkostnaður — 32,00 Óviss gjöld......................— 30,00 Á sambandsþing hlutu kosningu: Hólmgeir Þorsteinsson, Grund. Þórhallur Bjarnarson, prentari. Halldór Guðlaugsson, Hvammi. Varamenn: Erlingur Friðjónsson frá Sandi. Árni Jóhannesson, Kaupangi. Ingólfur Jónsson, prentari. Stjórnarkosning. Jakob H. Líndal formaður. Þórhallur Bjarnarson ritari. Erlingur Friðjónsson gjaldkeri. Varastjórn: Halldór Guðlaugsson, Hvammi. Hólmgeir Þorsteinsson, Grund. Árni Jóhannesson, Kaupangi. Til undirbúnings sundmótinu í sumar var nefnd skipuð: Lárus J. Rist, kennari. Kristján Árnason kaupm. Sigtr. Þorsteinsson verslunarm. I næsta blaði verður birtur útdráttur úr hag og starfskýrslum félaganna. Þ. B. Skýrsla fánanefndarinnar að eins ókomin; er nú í prentsmiðjunni, og allir jafn ófróðir um tillögurnar.

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.