Skinfaxi - 01.07.1914, Blaðsíða 13
SKINFAXI
97
ar umbætur í skólamálum þjóðarinnar.
Hið fyrra var að útrýma sem mest útlend-
um kenslubókum úr alþýðuskólunum. Þær
væru nemendum mjög erfiðar, þær eyddu
tíma þeirra að hálfu til einkis. En hins-
vegar væru spillandi áhrif þeirra á móður-
málið mjög auðsæ. Þær vendu menn á
að hugsa á dönsku og sletta dönsku sí og
æ. Til að ráða bót á þessu þyrfti að fá
hina færustu menn hér á landi til að gera
kenslubækur, en alþingi að styrkja útgáf-
urnar, svo að aldrei væri hér hörgull sæmi-
legra kenslubóka. Ræða A. P. var orð í
tíma talað, og er líkleg tii að hafa veru-
leg óhrif.
Olympíuleikír.
Nokkur stefnubreyting er þar að verða.
Skynsömum íþróttavinum ofbýður hve
miklu er fórnað sigurvoninni. Eftir því
sem kepnin vex gæta menn minna að því
hvort iþróttin styrkir og fegrar. Isumum
greinum, t. d. kúlukasti og rómv. glímu,
eru atburðamennirnir orðnir afmyndaðir og
ljótir vegna íþróttarinnar. Þetta sýnir ekki
að iþróttir þurfi að gera menn þannig held-
ur aðeins öfgarnar. Augu manna opnast
nú meir fyrir því að gera íþróttirnar al-
mennar, að stunda þær með skynsemi og
i samræmi við heilsu og líkamsfegurð, en
ekki að æskja mest eftir einstnkum íþróttajötn-
um. Eru því óvanalega daufar undirtekt-
ir undir Olympíuleikina næstu. Nefndin
breska vildi safna £ 100,000, en sá að það
dugði ekki og lækkaði kröfurnar um helming.
Þó fengust einungis 11,000 og er samskot-
unum hætti. Skorti þó ekki góð meðmæli
og áhrifamikla verndarmenn þar sem var
konungurinn og margir höfðingjar í land-
inu. Er þó ekki hér um að kenna sín-
girni, þvi að Englendingar eru manna fús-
astir til slíkra samskota er þeim þykja góð
málefni. En hér segir heilbrigð skynsemi
þjóðarinnar að sé komið út í öfgar og læt-
ur þá hendur falla. Sama er sagan frá
Frakklandi að þar er lítt hugsað til leikj-
anna, en hinn mesti áhugi að endurfæða
þjóðina í heild sinni með hollum íþróttum.
Og um þjóðverja er það að segja að þeir
hafa nýskeð á ríkisþinginu neitað um fjár-
veitingu til leikjanna. Ymsir framsýnir
menn spá að breyta verði innan skamms
stefnuskrá leikjanna svo að þeir styðji meir
en nú er að framþróun fegurðar og heil-
brigði,
Skíðamenu á Frabklandi.
Hver myndi trúa, að á Frakklandi, landi
víns og sólar, væri lögð stund á skiða-
iþróttina, sem við Islendingar hirðum svo
lílið um? Þó er það svo. í fjallendinu
austsntil á Frakklandi er mikill og tryggur
snjór um miðveturinn. I vetur var haldið
mikið skiðamót í Vogesafjöllunum. Komu
þangað Frakkar, Svisslendingar, Spánverj-
ar (úr Pepenafjöllum) og Norðmenn. Var
kept i 6 deildum og unnu Norðmenn i
öllum. A 6 km. vann N. Ösigaard (1, 47,.
33), á 58 km. L. Bergendahl (5, 50, 42)»
Heimilisiðnaður.
Eg vildi biðja Skinfaxa að flytja nokkr-
ar línur um heimilisiðnaðarmálið, og er
það af þeirri ástæðu að eg er þess full-
viss að mörgum ungm.félögum og öðrum
lesendum Skinfaxa er mál þetta miklu
síður kunnugt en skyldi. Hættir því ýms-
um mönnum að gera sér skakka hugmynd
um málið, sem annars eitthvað um það
hugsa.
Margir munu telja það liafa litla þýð-
ingu að skrifa mikið um þetta mál; en
eins og hægt er að segja og skrifa svo
mikið um eitthvert mál að það kafni í
tómum orðum, og menn hætti að gefa því
gaum, eins er hægt að segja svo lítið, eða
jafnvel þegja svo lengi að það gleymist
með öllu.
Islenskum heimilisiðnaði hefir farið all-
mikið aftur á síðari árum, um það eru