Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.07.1914, Blaðsíða 14

Skinfaxi - 01.07.1914, Blaðsíða 14
98 SKINFAXI flestir menn sáttir. Væri hægt að færa næg rök fyrir því ef rúmið leyfði, en þess mun tæplega þurfa. Fyrir nálega ári var stofnað félag í þess- Um tilgangi hór í Reykjavik, sem nefnist: Heimilisiðnaðarfélagið. Er á það minst í 7. tölubl. Skinf. s. 1. ár, og vildi eg benda mönnum á þá grein. Einnig var minnst á stofnun félagsins lítið eitt í Isafold. Ann- að heíir ekki verið ritað um þetta félag, svo mér sé kunnugt. Stjórn félagsins, sem kosin var á stofnfundinum sótti um lítinn fjárstyrk til alþingis síðastl. sumar. Þing- ið tók því þurlega, en veitti þó fél. 500 krónur hvort árið. Fyrir þessa upphæð byrjar nú félagið á því að halda náms- skeið í Reykjavík, sem stóð yfir i 6 vik- ur (til júní Ioka); voru þar kendar smíð- ar og ýmiskonar vefnaður. Ur því að félagið var á annað borð stofnað heldur það átram að starfa fram- vegis. Stjórn þess er í góðra manna hönd- um, er vinna af alhuga að heill þess. Og vænta má að alþingi auki heldur slyrkinn heldur en af honum verði klipið. Hvað nytseminni viðvíkur, þá er það sannfæring þeirra manna allra, sem nokk- uð hafa um heimilisiðnað hugsað, að hun verði mikil og góð, og félagið verði til þess að ryðja braut nýjum og hollum at- vinnugreinum inn í landið. Menn telja það víst, að muni þá, sem unnir eru á námsskeiðinu og í heimahúsum verði hægt að selja til útlanda- Heimilisiðnaðurinn kennir mönnum að nota tímann betur en gert er, og sann- færa menn um að tíminn er peningar. A ári hverju eru nú fluttir hingað til lands, og keyptir fyrn mikil af alskonar útlendum smáhlutum, sem sumir hverjir eru til lítilla nota, aðrir eingöngu til skrauts — og flestir svikulir mjög, nema dýrir séu. Marga af þessum hlutum mœtti búa til. jafnvel bæði betri og fallegri, með litlum kostnaði, ef hagsýni væri með, og menn kynnu réttu handtökin. Hlutirnir skreytt- ir einfalt en smekklega, bæði með fögrum myndum og einföldum úrskurði. svipað því sem unnið er í Noregi. Islenskan tré- skurð þyrfti að reisa við aftur o. fl. o. fl. A þenna hátt mætti útrýma miklu af því útlenda rusli, sem nú er borgað ærið fé fyrir. Þessu fylgcli enn sá kostur, að menn vendust smámsaman á að taka sína eigin innlendu hluti framyfir þá útlendu. Menn lærðu betur að meta gildi þess, sem þeir með sinni eigin starfsemi kynnu að fram- leiða. Það styddi þá réttmætu skoðun að sjálfsagt sé, að láta sitja í fyrirrúmi og hagnýta alt það, sem tök eru á að fá innlent og heima tilbúið. Um það er hægt að segja: Alt er það vort eigið, ekki að láni þegið, holt er heima hvað.“ Það þarf að stuðla að því, ef nokkur tök eru á, að námsskeið það, sem Heimiilis- iðnaðarfól. heldur uppi, meðan það er aðeins hér í Rvík, verði haldið á hentugri tíma en það er nú. Um þenna tíma árs er mönnum utan af landi nálega ókleypt að nota það nema af tilviljun. Kæmist her á kvöldskóli samskonar að vetrinum væri það mikil bót. Fræðslumálastjórinn hr. Jón Þórarins- son, aðal framkvæmdarstjóri fél. út á við, segir að þessi kensla þurfi innan skams að komast á í hverjum kaupstað. Það er rétt; og með sama rétti má segja að þessi starfsemi þyrfti sem fyrst að kom- ast á í hverri sveit. Það eru ungmennafél., sem öllum öðr- um fremur gætu hjálpað Heimilisiðnaðar- fél. og verið þess önnur hönd. Þau geta vakið áhugann fyrir nytsemi þessa félags- skapar, og þau geta starfað sjálf, eins og þau sum eru þegar farin að gera, og auk- ið þá starfsemi eftir því sem ástæður leyfa. Þeim er sæmd að efla þetta málefni sem önnur, sem miða að sönnum þjóðþrifum. Guðm. Jónsson (frá Mosdal.)

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.