Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.08.1916, Qupperneq 6

Skinfaxi - 01.08.1916, Qupperneq 6
102 SKINF AXI Af matjurtum hafa kartöflur og rófur niest verið ræktað. Uppskera af rófum hefir orðið 1335 kg. en af kartöflum um 1830 kg. Garðar eru taldir 2184 □ m. að stærð. Landeignir sínar hafa félögin ekki ekki virt allar til peninga og er þvi ekki hægt að sjá hvert sannvirði þeirra er. Hið sama gildir um sundlaugar og girðingar. Auðvitað verður aldrei hægl að virða þetta nákvæmlega rétt, en nokk- urnveginn má þó fara nærri um verðið. Mér er kunnugt um að fleiri ungm.fél. hafa int af hendi sjálfboðavinnu svipaða þeirri, sem áður er talin, en þau hafa ekki getið hennar á skýrslunum. í sjálfboðavinnunni — framar allri ann- ari starfsemi ungm.félaganna — lýsir sér ósérplægni og fórnfýsi þeirra. sem leysa hana af hendi. Einstaklingurinn lætur stjórnast af frjálsum vilja, og eigin hvöt, til þess að gera öðrum gagn og geta sér góðan orðstír, en er ekki knúður til þess eða þvingaður af utan að komandi vald- boði eða lagaskyldu. Sum félögin styðja og styrkja þá sem bágt eiga, önnur safna heybyrgðum, er gæti orðið vísir að heyforðabúrum í sveit- uni eða starfa að heimilisiðnaði og efla þannig iðjusemi á heimilunum, ofl. ofl. Eflaust hefðu þó fleiri félög tækifæri til að inna sjálfðoðavinnu af hendi, og slyðja og styrkja þá sem bágt eiga, því altaf er hægt að ná til þeirra. O. D. Leikmót í Landeyjum 1916. Leikmót ungmennafélaganna Dagsbrún- ar og Njáls var að þessu sinni háð við þinghús Vestur-Landeyjahrepps, laugardag- inn 9. júli, með sama sniði og að undan- förnu (sbr. Skinfaxa, 8. tbl. f. á.). Ágúst Andrésson í Hemlu, formaður Njáls, setti mótið með stuttri ræðu, og hófust síðan íþróttir; var það um hádegi. Fyrst var kept í 50 m. sundi. Syntu 6 menn, þrír úr hvoru félagi, og var Guðjón Jónsson í Hallgeirsey (úr Dags- brún) fljótastur, 41 sek. Næstur var Sig- hvatur Andrésson í Hemlu (úr Njáli). — Sigurvegarinn frá fyrra ári, Guðjón Jóns- son í Ey, var veikur og gat því ekki synt. Eftir sundið flutti Skúli prófastur Skúla- son í Odda ræðu fyrir minni Islands, og mæltist honum mjög vel. Að lokinni ræðunni glimdu 6 menn, þrír úr hvoru félagi. Magnús Gunnarsson í Hóimum (D) varð hlutskarpastur. Þá var reynt 100 m. hlaup, og vann Sighvatur í Hendu. Fleiri íþróltir voru ekki sýndar. Þá talaði Skúli yngri Skúlason i Odda um ættjarðarást, og séra Þorsteinn Bene- diklsson í Lundi. Veður var gott og mótið fjölment og fór það vel fram. S. V. íþróttasambandið Skarphéðinn. Svo sem kunnugt er, hafa ungmenna- félögin í Árne.s- og Rangárvallasýslum myndað samband sin á milli, sem nefnist Skarphéðinn. I því eru öll sambandsfé- lögin á nefndu svæði, 14 að tölu, og auk þess nokkur utansambandsfélög. Aðal- starf sambands þessa er að koma á ár- legu héraðsmóti við Þjórsárbrú. Iþrótta- menn sambandsins keppa þar um verð- laun og auk þess er skemt með ræðuhöld- um, söng, dansi o. fl. Hafa mörg af mót- um þessum verið mjög fjölsótt og sam- bandinu til sóma. 7. íþróttamótið var haldið 24. júnísíð- astliðinn. Var það að sögn kunnugra manna miklu fámennara en nokkru sinni áður, og þálttaka íþróttamanna mjög lítil,

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.