Skinfaxi - 01.09.1917, Page 6
70
SKINFAXI
fylt sál hans áhuga og eldmóði til að
starfa fyrir þær. En þetta eiga þau að
gera öll. Takist þeim að glæða neistann
sem er inst í hverjum manni og kenna
honum að berjast með drengskap og still-
ingu, þá hrinda þau vorum hag á Ieið,
með heillar aldartaki.
F.
íþróttir.
Dýrtiðin og aðrir örðugleikar valda því,
að ekki er hugsað til, að nein íþrótta-
kensla fari fram hér í Reykjavík af hálfu
Sunnlendingafjóðungs að þessu sinni.
Sömu orsakir draga auðvitað mjög úr
störfum Sambandsins, bæði fyrirlestrum
og íþrótlakenslu. Mikil bót er þó í máli,
að nokkur íþróttakensla hefir farið fram
á vegum félaganna á undanförnum árum.
Væri sæmilegur íþróttaáhugi ríkjandi
meðal Ungmennafélaga, þá gæti skaðinn
orðið miklu minni, en í fljótu bragði
virðist.
Iþróttasambandið hefir, eins og kunn-
ugt er, gefið út Glímubókina og unnið
með því sæmdarverk. Hún er svo vel úr
garði ger, að engu er um að kenna öðru
en áhugaleysi og deyfð, ef glímunni
hnignar, þó að námsskeið leggist niður
um stund. Auk þess eru í ílestum félög-
unum einhverjir sæmilega góðir glimu-
menn.
Um sund má og segja, að kensla í því
getur vel átt sér stað. Þekkingin er orðin
nokkur. Mörg félögin eiga nýtum mönnum
á að skipa til kenslunnar. Avalt aðgangur að
ágætri tilsögn í Rvík, hjá þeim feðgum
Erlingi og Páli, fyrir þá, er þess eiga
kost að öðru leyti. Sundlaugar mega vel
duga úr torfi og ábyggileg reynsla fengin
fyrir því, að sund er unt að læra í köldu
vatni, vor og sumar, þó að slíkt gangi
sýnu ver, en þar sem næst til hvera eða
lauga.
Skíðafarir tíðkast nokkuð á Norður- og
Vesturlandi, enda í sumum sveitum í hin-
um fjórðungunum. Einstök félög hafa
haldið skíðamót, en þar brestur eðlilega
mjög á þekkinguna. Vil eg því benda á
bestu bókina, er eg þekki og vel getur
orðið að liði í því efni. Það er: „Skilöb-
ning i Tekst og Billeder", eftir Frilz
Huitfeldt, Dybwads forlag Kristiania (kr.
3,00). Utflutningur á skíðum er leyfður
frá Noregi til íslands.
Þá er að minnast á aðrar algengustu
einmenningsíþróttirnar, hlaup, stökk, spjót-
og kringlukast. Fá og einföld áhöld þurfa
til þeirra, og höfuðkosturinn, að hver
getur iðkað þær heima hjá sér nær sem
tóm er til. Slökkstólpa getur hver lag-
virkur maður gert, og jafnvel má til æf-
inga notast við heimatilbúið spjót og
kringlu. Fyrirsögn um stærð og gerð er
í leikreglum f. S. I. Að vísu skal það
játað, að til þess að iðka þessar íþróttir
rélt, þarf tilsögn a. m. k. bækur. Þær eru
til ágætar á sænsku, tæpast fáanlegar nú,
en gott að vita af þeim, þegar friðsamleg
samskifti byrja á ný með þjóðunum.
Þrátt fyrir alt, virðist mega halda því
fram, að nokkuð megi starfa að íþrólt-
unum, ef áhugi og vilji eru til með æsku-
mönnunum að nota vel hina líðandi stund.
Vanti aftur á móti viljann og réttan skiln-
ing á gildi íþróttanna, er slikt raun mikil,
sem reyna verður að ráða bót á. Og til
þess eru námsskeiðin líklegust, auk þess
sem þau geta veitt dálitla byrjunartilsögn.
En til þess að koma þessum málum í
sæmilegt horf, ala upp hæfa kennara, skjóta
traustum stoðum undir íþróttastarfsemina
í heild sinni dugir ekkert annað en íþrótta-
skóli. Afdrit þess máls fara eftir því hverju
mikið er til af sannri manndáð, fram-
sóknarhug og hollum metnaði í Ung-
mennafélögunum. Skinfaxi býst við að.