Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.02.1918, Page 2

Skinfaxi - 01.02.1918, Page 2
10 SKINFAXl miklu meira fé til alþý'SufræSslunnar, en hann nú gerir og að fræðslumálastjórn verði þá aö hafa meiri bein afskifti af fram- kvæmd fræðslunnar. Hinu aukna tillagi landssjóðs ætti svo að verja til þess að launa aö öllu leyti alþýðukennurum, gera laun þeirra sæmi- leg og hækka þau eftir þjónustualdri. Veita íé að % hlutum til þess að reisa góð skólahús. Leggja fé til skólabókasaína. Launa að mirista kosti einn eftirlitsmann i hverjum landsfjórðungi, er vera skyldi til aðstoðar fræðslumálastjórninni, ferðast um, meðan k en s 1 a s t en d u r y f i r og gæta þess, að fé landsjóðs komi að not- um. Styrkja alþýðubókasöfn að mun og út- gáfu alþýðufræðirita. Styrkja viðtæka alþýðufyrirlestrastarf- semi, t. d. i sambandi við ungm.félögin. Jafnframt þvi að landið legði meira fé til fræðslumálanna væri sjálfsagt að fræðslumálastjórnin veitti allar kennara- stöður, og jafnsjálfsagt er hitt, að betra eftirlit verði haft með skólahaldinu. Um leið og kjör kennara yrðu bætt, þyrfti að breyta skipulagi fræðslunnar, þannig að fleiri börn kærnu á hvern kennara, en nú á sér viða stað, einkum í sveitum. Þjóð- in hefir ekki efni á, að halda kennara handa hverjum io—15 börnum. En svo vel ment- aðir eiga kennararnir að vera, að þeir eigi góð laun skilið. Rúniið leyfir elcki að fjölyrða meira um ])essi atriði, ög skulu menn hér að síðustu hvattir til að íhuga, i hverjar ógöngur nú er stefnt um uppeldi þjóðarinnar, ef ekki er af hálfu þings og stjórnar tekið til veigaitiikilla úrræða svo skjótt sem kostui Verður á. Tvent verður þó að minnast á enn. Elver einasti skóli ætti að eiga bóka- safn og einn höfuðþátturinn í starfi þeirra allra, ætti að vera sá, að laða nemendur til þess að notfæra sér bækur, og að stuðla að sjálfsnámi þeirra að skólanáminu loknu I stað þess að skólaskylda 8—10 ára börn eins og sumum virðist ákjósanlegt, þætti mér ráðlegra að leggja mikTa áberslu á að örfa áhuga þjóðarinnar á uppeldisfræðum og bættu heimilislífi. Mætti gera það með fyrirlestrastarfsemi, útgáfu uppeldisfræði- rita, með aðstoð kirkjunnar, með þvi að kenna uppeldisfræði og sálarfræði í öllum unglingaskólunr og kvennaskólum og með náinni samvinnu kennara og foreldra. Góð heimili eru hinar Ijestu uppeldistofnanir. Heimilin eiga aöalþáttinn í uppeldinu, heimilislífið skapar þjóðlífið, og verður því aldrei of oft tekið fram, hversu brýn skylda hvílir á þjóðfélaginu að stuðla að því, að heimilin engur síður en skólarnir, geti leyst sæmilega af hendi þetta vandasama, mikil- væga og góða hlutskifti, senr aldrei verður, né á að verða frá þeim tekið. J. K. Úti-íþr óttir. III. KAFLI. H 1 a u p. Hlaupum er venjulega skift í 3 aðal- flokka, eftir lengd þeirra. Stystu hlaupin, vanalega ekki styttri en 50 m. og aldrei lengri en 400 m., eru kölluð spretthlaup (sprints). Þar næst miðlungshlaup (frá 800—3000 m.) og lengri vegalengdir þol- hlaup. Undir spretthlaup heyra grinda- hlaup, sem venjulega eru að eins hlaupin á tveim vegalengdum (110 og 400 m.) — Með þolhlaupum verður að telja víðavangs- hlaup og hindranahlaup; bæði vegna þess, að oftast eru þau yfir þolhlaupavegalengdir og sömuleiðis vegna þess að þau, af öðr- um ástæðum gera meiri kröfur til þols en flýtis.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.