Skinfaxi - 01.02.1919, Qupperneq 1
2. BLAÐ
REYKJAVÍK, FEBRÚAR 1919.
X. ÁR.
Sterkasta vígið.
]?að mun vera álit flestra þeirra, er
til þekkja, að þau ungmennafélög, sem
mest liggur eftir af verklegum fram-
kvæmdum og góðum áhrifum, séu U.
M. F. Reykjavíkur og „Iðunn“, bæði í
Reykjavík. En nú á siðustu árum hafa
þau verið í hættu stödd. Stofnendur
þeirra og aðrir félagsmenn frá fyrri ár-
um hafa ýmist eignast önnur áhugamál
en þau, sem lágu á starfssviði félaganna,
eða flutst í burtu, og uppvaxandi kyn-
slóðin hefir leitað útþrá sinni fullnæg-
ingar annarsstaðar. Má það furðuleg't
heita, hversu lítil aðsókn hefir verið lil
ungmennafélaganna af hálfu æskulýðs-
ins í Reykjavík, þegar litið er á hvað
fjölmennið hér er mikið og félagsskap-
urinn góður og göfgandi
Víða í sveitunum virðist ckki mikið
bera á þessari „elli“ í félagsskapnum og
þau eru ekki mörg félögin, sem jafnt
geta munað tvenna tímana og U. M. F.
Reykjavíkur, En til þess liggja ýms
sterk drög, auk þeirra, er að ofan getur.
pess ber að gæta, að öfgar þjóðlífsins
eru hvergi jafnskýrar og i höfuðstaðn-
um. Hvergi jafnmörg né máttug öfl,
sem ýmist miða til falls eða framsókn-
ar félagsskapnum, sem þar. Hvergi jafn-
góð tæki til þess að gera samkomur fé-
laganna örvandi og mentandi; fjöl-
menni ærið í tugi félaga og svo sam-
býlið. Hins vegar gætir hvergi svo mjög
mótspyrnunnar gegn félagsskapnum.
Hvergi á æskulýðurinn völ á jafnmörg-
um tegundum skenítana og lystisemda
eins og í höfuðstaðnum. Hvergi er jafn-
mjög dekrað við hvers konar lægri hvat-
ir manna, sem þar. Hvergi jafnmargt,
sem dregur æskulýðinn frá þeim fé-
lagsskap, er gerir háar kröfur til fram-
kvæmdaþreks, fórnfýsi og siðaþroska
hans, sem þar. pess vegna þarf i Reykja-
vík að gera mestar kröfur til leiðtog-
anna í ungmennafélögunum.
pegav litið er á þetta megna andóf
hinna sundurleysandi krafta bæjarlífs-
ins og að auki þær hömlur, er styrjöld-
in lagði á félagslífið og að lítil félög eiga
að þvi leyti sannnerkt stórþjóðum, að
eiga sín afturfarar og framsóknarskeið,
þá virðist eigi sæmilegt að græta kom-
andi tíma með löngu ináli um það, að
fölskvast hafi eldurinn þessi striðsár hjá
okkur hér í Reykjavik. Og er slikt held-
ur alls ekki sagt þessum góðu félögum
til linjóðs.
pess bæri heldur að minnast, hversu
mikið Sambandið og mörg einstök fé-
lög viðsvegar um landið eiga þessum
tveimur fyrnefndu félögum að þakka.
þau hafa verið fyrirmynd bæði í verk-
legum framkvæmdum og góðu félags-
lífi. Margir æskumenn hafa á dvöl sinni
hér kynsl stefnunni og anda þeirra, og
stofnað félög og gerst fyrir það nýtir
félagar heima í átthögúm sínum á eftir.
Félögin í Reykjavík hafa líka lagt til