Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.1919, Blaðsíða 4

Skinfaxi - 01.08.1919, Blaðsíða 4
60 SKINFAXI Þinggerð fjórðungsþings Sunnlendingafjóröungs. ]?að var liáð á pingvöllum 22. og 23. júní s. 1. — Birtist hér ágrip af störf- um þess: 1. Fjórðungsstjóri mintist starfsins síðastl. ár. Minni framkvæmdir en áð- ur, sem stafaði af burtför fjórðungs- ritara og af ýmsum hömlum vegna kvefpestarinnar, sem olli því m. a. að fyrirlestrar féllu niður í mörgum félög- um. austanfjalls. Félög i fjórðungssam- andihu eru nú 33 — 20 sent skýrsl. Tvö gengu í samb. á árinu: Ingólfur í Holtahreppi og Ármann í pingvallasveit. Reykjavíkurfélögin sameinast. U. M. F. Gnúpverja hætt að starfa. 2. ]?ví næst fóru fram nefndalcosn- ingar. Kosnar fjórar nefndir. Til að end- urskoða rcikninga f jórðungsins, íþrótta- mála- og fyrirlcstranefnd, nefnd til að íhuga liækkun á fjórðungsskatti og liin fjórða lil að athuga samband ungm.fél. við íþróttasambandið. pessum störfum var lokið fyrri dag- inn. 3. Síðari daginn lögðu endurskoð- endur fram reilcningana. Voru þeir i ágætu lagi. 4. ]?essar tillögur voru samþyklar frá íþrótta- og fyrirlestranefndinni: a. „Fjórðungsþingið ákveður aðhalda námsskeið í iþróttum í Reykjavík á næsta vetri, cf nægileg þátttaka fæst. Fáist hún ekki, en U. M. F. Borgarfjarð- ar og ungmennafél. austan fjalls sjái sér fært að halda námsskeið hjá sér, skal þeim veitt það fé, sem þingið veit- ir til íþrótta, og skiftist það til helminga á milli þeirra.“ — Félög annarstaðar í fjórðungnum hafa rétt til að sækja námsskeið Borgfirðinga eða austan í'jalls eftir vild. h. „Fjórðungsþingið er því eindregið fylgjandi, að ungmennafél. bciti sér fyrir stofnun iþróttaskóla ásamtlþrótta- sambatidinu. Kýs þingið 3ja manna nefnd milli þinga, til að athuga þetta mál og íþróttamálin yfirleitt. Jafnframt skorar þingið á félögin í fjórðungnum að ræða málið og búa undir næsta fjórð- ungsþing.“ í nefndina voru kosnir: Aðalsteinn Sigmundsson, Björn Bjarnarson og porgils Guðmundsson. c. „þingið felur fjórðungsstjórninni að senda fyrirlestramenn til félaganna eins og að undanförnu.“ 5. Samþ. með 14 atkv. gegn 5 að skora á öll fjórðungsfélögin að ganga í íþróttasambandið. 6. Hækkun fjórðungsskatts. Samþ. þessi till.: „þingið samþykkir, upp á væntánlegt samþykki sambandsstj órnar U. M. F. ísl., að hækka fjórðungsskatt- inn um 15 aura af hverjum reglulegum félaga.“ , 7. Fjárhagsáætlun þessi var samþ. í einu hljóði: Tek j ur: 1. í sparisjóði ...... kr. 419.80 2. Skattur frá félögunum — 660.20 Alls kr. 1080.00 G j öld: Til fjórðungsþings og stjórnarkostnað- ur ..................... kr. 100.00 Til fyrirlestra............. — 400.00 —- íþrótta ................. — 300.00 Óviss gjöld ................ — 280.00 Samtals kr. 1080.00 8. Gestaenfnd. Aðalst. Sigmundsson skýrði frá gerðum nefndarinnar síðastl. vetur og lagði til, að hún starfaði fram- vegis. Var fjórðungsstjórn falið að skipa nýja nefnd til starfanna næsta vetur. 9. Um kynnisfaramálið urðu tals-

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.