Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.12.1919, Blaðsíða 3

Skinfaxi - 01.12.1919, Blaðsíða 3
SKINFAXI 91 eða öðrum stöðum til að leita félags- skapar eða leiksystkina. Honum var kunnugt um hversu hættulegt göiulífið er fyrir heilsu og siðferði lítt þroskaðs fólks og ekki hvað síst veslings barn- anna. En þótt börnin væru meiri hluta dagsins við skólana, þá voru húsin samt ónoluð margar kenslustundir á dag og alt sumarið. Mr. Wirt áleit því, að fólk- ið, sem hafði kostað til bygginganna, ætti að hafa þær til almenningsafnota þann tíma, sem ekki væri skóli; því voru stofnaðir kvöldskólar, laugar- dagsskólar og þar að auki sumarnám- skeið við alla alþýðuskóla í Gary. Að nota skólana svona mikið, cykur auð- vitað viðhalds og umhirðulcostnað, svo það varð að finna ráð til að vinna hann upp á einhvern hátt. (Framh.) Heilsnfræðisbálknr. Fólk sem vinnur við kenslu, skrif- stofustörf eða aðra vinnu, sem unnin er inni við og hefir miklar kyrsetur í för með sér, hefir oft þann sið að iðka ýmsar æfingar undir beru lofti á sumr- in, en sest svo í helgan stein þegar kóln- ar i veðri. Slík umskifti eru mjög skað- leg' fyrir heilsuna, og ætti algerlega að forðast. pegar ekki er fært að gera neitt úti, á að iðka þá fimlcika inni i loft- góðu húsi, sem æfa allan líkamann í samræmi. Annars er hér á landi sjaldan svo vont veður, að ekki sé hægt að iðka •einhverjar útiíþróttir. Reglubundnar æfingar cru því holl- ar sál og líkama, jafnvel þótt sá, sem æfir, hafi ekki áhuga á starfinu. Sumir íþróttafræðingar Iiafa haldið því fram, að að eins þær æfingar, sem fólk hcfir áhuga á, hafi holl álirif, en sú kenning hefir verið hrakin. Merkur amerískur heilsufræðingur hafði þessa skoðun og fór að gera tilraun íil að sanna að hún væri góð og gild, en niðurstaðan varð hin gagnstæða, svo að hann breytti skoðun sinni. í heilan vétur hafði hann fyrir reglu að fara á leikfimisæfingar, þrátt fyrir það þótt það væri honum andleg byrði, en þegar veturinn var lið- inn, þá varð hann þess var, að hann hafði engan vetur áður verið svo lieilsu- góður. Enda þótt þær æfingar, sem ekki eru iðkaðar af fúsum vilja, hafi góð áhrif, þá eru hinar, sem gerðar eru af fúsum vilja, og sem menn eru frá náttúrunnar hendi hneigðir fyrir, enn hollari fyrir líkams og sálarlíf manna. Ýmsir knattleikir, skemtireið á góð- um hesti, skauta og skíðaferðir eru mjög upplyftandi og vekja sofandi öfl úr læðingi og knýr þau til starfsemis. j?á eru fjallgöngur sem miða að á- kveðnu takmarki, t. d. ef tilgangurinn er ekki einungis sá, að fá likamlega æf- ingu, heldur líka að njóta samfélags við skemtilegt og gott fólk, og að njóta feg- urðar góðs útsýnis þýðingarmiklar. Fjallgöngur styrkja því ekki að eins fæturna, heldur líka auka þær fegurð- artilfinningu, samhygð og félagsanda á mcðal þeirra sem taka þátt í þeim. Ef ræðari vinnur að því, og liefir mikinn áhuga á því, að hafa fallegt áralag, vinnur hann af kappi að ná þvi tak- marki og ef hann gefst ekki upp, hcfir hann fallegt og gott áralag, og finnur mikinn mun á vondu og góðu áralagi. pannig hefir áhugi hans og kapp gert áralag hans að íþrótt og einnig skapað eða vakið Iijá honum tilfinningu fvrir leikni og fegurð í róðri. Grikkir lögðu, eins og kunnugt er, afarmilda áherslu á fegurð og samræmi í öllu, með aðstoð íþróttanna hugðust þeir að komast á æðsta stig likamlegs

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.