Skinfaxi - 01.12.1919, Blaðsíða 4
92
SKJNFAXI
og andlegs atgerfis, eða verða guðum
líkir eins og þeir komust sjálfir að orði.
• 1 þeim löndum þar sem íþróttalíf er
fjörugt og á háu stigi, eins og i Eng-
landi og Ameríku, er hugsunin um að
vinna í leiknum alt of rík, og íþróttin
hefir því oft lamandi áhrif á þroska
þess sem iðkar. Tilfinning fyrir fögr-
mn hreyfingum og limaburði kemst
því ekki að eins og vera ber. J?að hefir
oft átt sér stað, að þeir sem hafa tekið
þátt í íþróttum við ameríska menta-
skóla hafa ofreynt sig og þannig spilt
heilsunni, svo að þeir hafa aldrei feng-
ið bætur á.
Tilgangur líkamsæfinga er ekki að
þroska um of sérstaka vöðva, eða að
æfa menn til vissra vinninga á íþrótta-
xnótum. Heldur eiga þær að samstilla
og æfa alla vöðva jafnt, svo þeir geti
ailir unnið í samræmi hver við annan,
einnig að auka starfsemi sella og allra
líffæra og útiýma óliollum efnum sem
setjast að í líkamanum. Jafnvelþaðfólk,
sem vinnur líkamlega vinnu, ef hún
hefir ekki áhrif á alt vöðvakerfið, þarf
að iðka æfingar sem reyna á og styrkja
þá vöðva, sem ekki hafa starfað að
vinnunni.
íþróttaskólinn
Nú eru sem óðast að koma svör fi'á
U. M. F. viðvíkjandi bréfi því, sem
sambandsstjói'nin sendi út í júlí síðast,
um stofnun íþróttaskóla hér á landi;
eru undirtektirnar mjög góðar, fólki er
Ijóst hvílíkur aflgjafi slík stofnun yi'ði
íslensku íþróttalífi og þjóðlífi yfir
höfuð, og að án hans geti ungmenna-
félögin ekki átt glæsilega framtíð.
pessi félög hafa þegar sent svar:
U. M. F. „Svanurinn“ í Álftaveri í
Yestur-Skafíafellssýslu iofar til skólans
20 kr. á ári í næstu fimm ár. „Mér
skilst það vel,“ segir formaður þess fé-
lags, „að skilyrðið fyi’ir góðum árangri
af stai’fi okkar ungmennafélaga, er að
við öll göngurn að verki með einlægni
trú, einlægum áhuga og félagsskap, þvi
að þetta eru þau vopn sem vinna flest,
sem vilji okkar vill.“
U. M. F. „Framsókn“ í Landbroti er
einnig eindregið málinu fylgjandi, og
hendir á hve mjög það hafi staðið í-
þróttunum fyrir þrifum, þó einkum til
sveita, að ekki hefir altaf verið völ á
hæfum kennára. Félagið álítur því, að
skóli, þar sem alls konar íþróttir yrðu
kendar, sé alveg nauðsynlegur til efl-
ingar íslensku íþróttalifi, og lofar að
styrkja fyrirtækið eftir megni.
U. M. F. „Ingólfur“ í Holtahreppi og
U. M. F. Öi'æfinga lofa einnig að halda
málinu vakandi, uns alt féð er fengið
sem þarf til skólastol'nunarinnar.
U. M. F. „Vestri“ á Rauðasandi skrif-
ar oss rælcilegt bréf um málið, þar sem
sagt er meðal annars: „. . . . Málefnið á
hér einhuga fylgi vor félaga, og vér
viljurn með ósérplægni leggja fram
krafta vora til þess að þetta þjóðþrifa
og nytjafyrirtæki komist sem fyrsl í
verklega framkvæmd. petta á og hlýt-
ur að vera áhugamál allra ungmenna-
félaga. pcim er það meðskapað boðorð
með stefnuskránni. Fjöreggi ung-
mennafélaganna, íþróttunum, verður
seint klakið út, nema það fái hita ein-
hvei’sstaðar að, fái hita frá góðum, ís-
lenskum íþróttaslcóla. Iþróttaskólamál-
ið er því að voru áliti það mál, sem oss
er nauðsyn að beitast fyrir, og skyldast
að brjóta ísinn að......“
pá hefir U. M. F. „Egill rauði“ i
Norðfirði einnig lofað að styrkja þetta