Skinfaxi - 01.09.1921, Side 3
SKINFAXI
23
launum. — Og þeir tímar munu koma,
og eru þegar komnir«.
»— — — Þrjár eru aðalgreinar starfs
vors: Þjóðarvakning, þjóðarmentun og
þjóðarsiðmenning. Hinar tvær fyrri þörfn-
umst vér framvegis sem áður fyr. Hin
síðastnefnda þarf að verða æ veigameiri í
starfi voru«.
Sambandsþíng U. M. F. í.
— 26 —28. júní 1921.
Sjötta sambandsþing ungmennafé-
laga Islands var háð í Reykjavík
26.—28. júní. Var þingið sett í liúsi K.
F. U. M. sunnudag 26. júní kl. 8 að kvöldi
dags. Setti sambandsstjóri, Jónas Jónsson
frá Hriflu, þingið og bauð fulltrúa vel-
komna, er menn höfðu sungið »Vormenn
Islands«.
Þessir fulltrúar sóttu þing úr Sunnlend-
ingafjórðungi:
1. Þorgils Guðmundsson, 2. Jón Þor-
steinsson, 3. Jón Guðnason, 4. Þorsteinn
Þórarinsson, 5. Ellert Eggertsson, 6. Hall-
dóra Sigurðardóttir, 7. Aðalsteinn Sig-
urðsson, 8. Þorsteinn Sigurðsson, 9. Jóna
Þorbjarnardóttir, 10. Guðrún Björnsdóttir,
11 Björn Birnir, 12. Magnús Stefánsson.
Ur Norðlendingafjórðungi:
Ingólfur Jónsson, Sigfús Hallgrímsson,
Erlingur Eriðjónsson.
Ur Vestfirðingafjóröungi:
Björn Guðmundsson og Guðmundur Jóns-
son frá Mosdal.
Daginn eftir voru komnir 2 fulltrúar í
viðbót: Frá Sunnl.fj. Magnús Á. Blöndal
og frá Sambandi Au-Skaftfellinga Páll Þor-
leifsson. Sóttu því 19 fulltrúar alls sam-
bandsþing þetta.
1. fundur.
1. Sambandsstjóri nefndi þá til forseta
þingsins Björn kennara Guðmundsson og
var það samþ. í e. hlj. Nefndi forseti þá
þingritara Þorstein Sigurðsson frá Vatns-
leysu í Biskupstungum.
2. Var þá kosin 5 manna nefnd til rann-
sóknar kjörbrjefa og lagði hún síðar til
að allir fulltrúar væru taldir löglega kosn-
ir, þótt eigi hefðu. allir þeirra getað náð
kjörbréfum sínum.
3. Því næst var samþykt að byrja fundi
næsta dag kl. 9 árdegis.
4. Að ráði sambandsstjóra var þá þeg-
ar kosið í fastar nefndir þessar:
a. Dagskrárnefnd: Bj. Guðmunds-
son, Þorst. Sigurðsson og Jón Kjartans-
son.
b. Lagabreytingarnefnd: Jónas
Jónssón, Þorst. Þórarinsson, Erl. Friðjóns-
son, Jón Guðnason og Bj. Birnir.
c. Iþróttaskólanefnd: Guðmund-
urjónsson frá Brennu, Jóna Þorbjarnardótt-
ir, Ellert Eggertsson.
d. F j á r m á 1 a n e f n d : Þorst. Sigurðs-
son, Guðr. Björnsdóttir, Guöm. Jónsson,
Þorg. Guðmundsson, Guðm. frá Mosdal.
e. Starfsmálanefnd: Halld. Sig-
urðardóttir, Jón Þorsteinsson, Aðalst. Sig-
mundsson, Magnús Stefánsson, Jón Kjart-
ansson.
f. Skinfaxanefd:Bj. Guðmundsson,
Ingólfur Jónsson og Sigfús Hallgrímsson.
g. S t j ó r n a r s k i p u n a r n e f n d : Bj.
Birnir, Jónas Jónsson, Guðm. frá Mosdal,
Erl. Friðjónsson og Aðalst. Sigmundsson.
5. Þá bað sambandsstjóri fulltrúana að
leiöbeina nefndum þessum við störf þeirra
sem best mætti verða. Tókust svo almenn-
ar umræður um ýms mál, er fulltrúar og
sambandsstjórn óskuðu að rædd væru á
þingi. — Skýrði svo samb.stjórn lausl. frá
helstu sambandsstörfum á liðnum árum og
gaf skýrslu um fjárhag sambandsins.
2. fundur kl. 10 árd. n. d.
6. Sambandsstjóri skýrði þá nánar frá
starfsemi sambandsins á liðnum árum. I