Skinfaxi - 01.09.1921, Blaðsíða 4
24
SKINFAXI
Skinfaxi
Mánaðarrit U. M. F. 1.
Verð 2 krónur. — Gjalddagi fyrir 1. júlí.
Ritstjóri: Helgi Valtýsson, Pósthólf 533
Afgreiðsla og' innheimta — 516
fyrsta lagi hafði Jón Kjartansson vestfirð-
ingur verið fastur starfsmaður sambands-
ins, annast ritstjórn og útsendingu '>Skin-
faxa« og ferðast um Austurland. En er
dýrtíðin ágerðist, varð ókleift að kosta
mann sérstaklega. Var þá Olafur Kjart-
ansson, skaftfellingur, ráðinn til að annast
ritstjórn og afgreiðslu blaðsins að nokkru
leyti.
Héraðssambönd eru nú 8 alls, og auk
þeirra nokkur félög, sem enn hafa eigi
gengið í neitt samband. Fyrirlestraferðir
nokkrar hefir sambandið kostað t. d. ferð
Jóns Kjartanssonar austur. Sunnanlands
hefir fjórðungssambandið haldið uppi fyr-
irlestrum, og því minni þörf að samband-
ið hlutaðist þar til um.
Sambandið hefir gefið út ljóðakver —
»Heimleiðis«, eftir Steph. G. Stephánsson
— og tekið lán til útgáfunnar, sem nú er
endurgreitt að fullu.
Farið hafði fram atkvæðagreiðsla um
skiftingu Sunnlendingafjórðungs, en þótt
vafasöm úrslitin og því frestað úrskurði
þess máls.
Samskot eru hafin til Iþróttaskóla
og hefir safnast liðlega 700 krónur til þess.
Er máli þessu alstaðar vel tekið. Iþrótta-
skólinn á fyrst og fremst að efla sveita-
íþróttirnar, en vitanlega einnig að efla í-
þróttir alstaðar í landinu.
I sambandssjóði eru nú á 6. þús.
krónur. Oskaði gjaldkeri þess, að þingið
kysi menn til að athuga reikninga sam-
bandsins, þar eð þeir væru eigi fyllilega
endurskoðaðir.
Sambandsritari mintist lítið eitt á »Skin-
faxa«, en kvaðst gefa »Skinfaxa«-nefnd
þingsins ítarlega skýrslu.
7. Lagabreytingarnefndin lagði
því næst fram tillögur sinar og hafði Erl.
Friðjónsson framsögu. Tókust þá almenn-
ar umræður um till. nefndarinnar, og varð
eigi útrætt á þeim fundi.
3. fundur kl. 5 síðd. s. d.
Héldu þá áfram umræður um laga-
breytingafrumvarpið.
Við 1. gr. frumvarpsins kom fram svo-
hljóðandi breytingartillaga:
»Sambandið heitir: Samband ungmenna-
félaga Islands, skammstafað: U. M. F. 1«.
Var breytingartillaga þessi samþ. með
öllum atkvæðum, og verður þá 1. gr. lag-
anna.
1. liður 2. gr. samþ. í einu hljóði eins
og hann er í núverandi sambandslögum,
og fellur þá í burtu úr frumv. orðið »sið-
ferðislegur«.
Samþykt var í einu hljóði tillaga um
að skuldbindingarskráin sé óbreytt frá því.
sem verið hefir. Einnig voru hinir liðir
greinarinnar samþ. í e. hlj.
Þá urðu allmiklar umræður um það,
hvort skylda ætti U. M. F. 1. til að ganga
í I. S. I. (c: Iþróttasamband Islands). Voru
all-margir því mótfallnir. Var svohlj. dag-
skrá borin undir atkvæði og samþ. með
öllim atkv. gegn tveimur:
»Fundurinn vill ekki að þessu sinni taka
afstöðu til þess, hvort skylda beri öll ung-
mennafélög til að ganga í I. S. 1«.
3. gr. frumv. samþ. óbreytt með öllum
atkv., að því undanteknu að skammstöf-
un sambandsins sé breytt samkvæmt 1.
grein.
4- °g 5- grein samþ. í e. hlj.
6. gr. samþ. í e. hlj. eftir að feld var
br.till. um, að sambandsþing skuli háð 5.
hvert ár í staðinn fyrir »3. hvert« með
öllum atkvæðum gegn tveimur.
Um 7. grein frumv. urðu nokkrar um-
ræður, er aðallega snerust um það, hvort