Skinfaxi - 01.09.1921, Side 5
SKINFAXI
25
kjósa ætti sambandsstjórn með sama fyr-
irkomulagi og áður, eða alla í einu, og
skifti hún svo sjálf með sjer verkum. Svo-
hljóðandi breytingartillaga kom fram :
»Það kýs 5 menn í sambandsstjórn:
sambandsstjóra, ritara, gjaldkera og 2 með-
stjórnendur«. — Samþ. í e. hlj. og verð-
ur tillaga þessi niðurlag greinarinnar. Fyrri
hluti greinarinnar var samþ. í e. hlj.
8. gr. samþ. í e. hlj.
Um 9. gr. urðu nokkrar umræður. Við-
aukatillaga við þá grein :
»Reikningsárið er almanaksárið og send-
ir sambandsstjórn héraðss'tjórnum yfirlit
yfir hag sambandsins«. Var svo greinin
með viðauka þessum samþ. í e. hlj.
10.—14. gr. samþ. í einu hljóði. Voru
þá lögin í heild sinni borin undir atkvæði
fundarmanna og samþ. með öllum greidd-
um atkvæðum. —
8. Þorst. Þórarinsson gerði fyrirspurn
hvenær ætti að breyta fjórðungssambönd-
um í héraðssambönd. Oskaði einnig eftir
að málið á lögunum yrði lagfært, áður en
þau yrðu prentuð. Ennfremur að hverju
félagi yrði send jafnmörg eintök af lög-
unum og fjelagar væru margir.
9. Þessu næst var samþykt svohlj. till.
»Sambandsþingið skorar á félögin inn-
an U. M. F. I. að ganga sem fyrst í
»íþróttasamband Islands« ef {áau eru það
eigi þegar, og senda fulltrúa á aðalfundi
I. S. I. svo marga sem þau mega«.
Samþ. með öllum þorra atkvæða.
4. fundur kl. 8V2 síðd. s. d.
10. Alit »S kin fax a«-n efn dar. Fram-
sögumaður Ingólfur Jónsson:
Nefndin leggur til:
a ð fráfarandi stjórn sé falið að ganga
svo vel sem orðið getur frá Skinfaxamál-
unum eldri og skili svo viðtakandi stjórn,
a ð blaðið verði fyrst um sinn 8 arkir,
verð þess 3 krónur; þó hefir stjórnin heim-
ild til þess að stækka blaðið í 12 arkir
og hækka verð þess í 4 kr., ef henni sýn-
ist það hyggilegt,
a ð við hver áramót séu gerðir upp
reikningar blaðsins og birtur útdráttur úr
þeim héraðssamböndum,
a ð viðtakandi stjórn verði falið að
semja á ný um prentun blaðsins við prent-
smiðju þá sem best kjör býður, og leiti
fyrir sér um kaup á pappír.
Breytingartill. um »að Skinfaxi verði 12
arkir á ári, komi út mánaðarlega og sé
verð hans 4 kr.«, var feld með meirihluta
atkv. og voru þvínæst tillögur nefndar-
innar samþyktar í einu hljóði.
11. Alit starfsmálanefndar. Fram-
sögum. Magnús Stefánsson.
a. Iþióttir: Þingið felur sambandsstjórn-
inr.i að vinna að aukinni íþróttastarfsemi
innan félaganna, einkum telur það nauð-
synlegt að vekja og glæða áhuga ungu
kynslóðarinnar á nytsemi íþrótta. 1 því
skyni er stjórninni heimilt að ráða um-
ferðakennara, styrkja námsskeið héraðs-
sambandanna og gera þær ráðstafanir, sem
fjárhagur sambandsins leyfir, og hún telur
íþróttum til eflingar.
b. Skógrœkt: Þingið felur sambands-
stjórninni að láta endurbæta girðingu um
skóglendi sambandsins (»Þrastaskóg«) svo
fljótt sem unt er. Ennfremur að reynt
verði að fá ungmennafélaga til að vinna
að grysjun skógarins endurgjaldslaust.
c. Fyrirlestrar: Þingið felur sambands-
stjórninni að sjá svo urn, að hvert félag
fái minst einn fyrirlestur á ári, frá hálfu
sambandsins.
d. Heimilisiðnaður: Þingið felur sam-
bandsstjórninni að hlutast til um það við
smærri samböndin, að þau haldi stutt
heimilisiðnaðarnámsskeið, og er sambands
stjórn heimilt að verja fé úr sambands-
sjóði til slíkra námsskeiða, ef fjárhagur
sambandsins leyfir.
Tillögur nefndarinnar voru samþyktar
í einu hljóði.
12. Friðun skógarleifa í Leyn-