Skinfaxi - 01.09.1921, Qupperneq 6
■2 6
SKINFAXI
ishólum. Svohlj. till. var samþ. á fjórð-
ungsþingi Norðlendinga h. 9. og 10. apríl
síðastl.:
»Fjórðungsþing Norðlendingafj. mælist
fastlega ti! þess að næsta sambandsþing
U. M. F. I. sem háð verður í Reykjavík
1921, beiti séf eindregið fyrir því, að
skógarleifar í Leynishólum í Eyjafirði
verði girtar svo fljótt sem ástæður leyfa
og þannig trygðar gegn eyðileggingu«.
I þessu máli kom fram svohljóðandi till.
sem var samþ. í einu hljóði:
»Sambandsþingið felur sambandsstjórn
að gera sitt ítrasta til þess að fá skóg-
ræktarstjóra og ríkisstjórn til að láta girða
skógarleifarnar í Leynishólunr í Eyjafirði
og víðar«.
13. Svohlj. fundarályktun var sam-
þykt með 8 atkv.:
»Sambandsþingið ályktar að næstu þrjú
ár skuli hvert héraðssamband greiða í
sambandssjóð 35 aura fyrir hvern félags-
mann. Skal gjald þetta vera greitt fyrir
lok maímánaðar ár hvert, í fyrsta sinn
vorið 1922.
14. Um útgáfusjóð:
Magnús Stefánsson flutti svolátandi til-
lögu, er samþ. var í e. hljóði:
»Sambandsþing ákveður að myndaður
verði útgáfusjóður innan U. M. F. I. og
undir umsjón sambandsstjórnar.
Tekjur sínar fær útgáfusjóður þannig,
að ungmennafélagar er styrkja vilja sjóð-
inn, greiða árstillög til sjóðsins eða æfi-
tillag eitt skifti fyrir öll. Sjóðnum skal
varið til útgáfu nytsamra bóka og ritlinga
um ungm.félagsmál. Arstillög skulu vera
að upphæð kr. 5.00, en æfitillög kr. 50,00«.
I sambandi við þetta lcom fram þessi
till., er samþ. var í einu hljóði:
»Þingið skorar á sambandsstjórnina að
koma í verð bókum þeim, sem samband-
ið hefir gefið út og á enn óseldar. Tekjur
af sölu bóka þessara renni í útgáfusjóð*.
5. fundur kl. 10 árd. n. d.
15. Alit fj ármálanefndar. Fjárhags-
áætlun fyrir fjárhagstímabilið 1921 —1924:
T e k j u r:
I sjóði 26. júní 1921 . s . . kr. 3321.51
Inneign hjá blaðinu Skinfaxi — 790.05
Sambandsskattur í 3 ár . . . — 6000.00
Arstillög félaga í 2 ár ... — 2000.00
Alls kr. 12111.56
Gjöld:
Til íþrótta................kr. 2000.00
— fyrirlestra...............— 3000.00
skógræktar..............- ■ - 1000.00
— heimilisiðnaðar............— 300.00
— Skinfaxa..................— 900.00
Kostnaður við Samb.þing. . — 1000.00
Stjórnarkostnaður..............— 600.00
Oviss gjöld....................— 600.00
í sjóði við lok fjárh.tímabils — 2711.56
Alls kr. 12111.56
Fjárhagsáætlun þessi var samþ. í e. hlj.
16. Reikningar sambandsins lagðir fram
endurskoðaðir, og var ekkert við þá að
athuga. Samþ. með öllum samhlj. atkv.
17. Alit íþróttaskólanefndar.
Framsögum. Ellert Eggertsson:
»Nefndin leyfir sér að leggja til, að
lagt sé kapp á að safna fé í »íþrótta-
skólasjóð« með frjálsum framlögum ung-
mennafélaga o. fl. Telur nefndin æskilegt
að þingið kjósi sérstaka nefnd, 'er hafi
umsjón með sjóðnum og annist um fjár-
söfnun. En sambandsstjórn hafi eftirlit með
störfum nefndar þessarar«. — Samþ. í
einu hljóði.
Kosnir voru í nefndina: Jón Þorsteins-
son, Guðtn. Jónsson frá Brennu og Jón
Kjartansson.
18. Magnús Stefánsson gerði fyrirspurn
um gildi viðaukalaga sambandsins. Var
sambandsstjórn falið að breyta þeim í
samræmi við nýju sambandslögin.