Skinfaxi - 01.09.1921, Qupperneq 7
SKINFAXI
2 7
19. Sambandsstjóri gerði tillögu um að
kosin væri nefnd til þess að athuga þing-
kostnaðinn. Hlutu kosningu: Erl. Friðjóns-
son, Guðm. frá Mosdal og Þorst. Þórar-
insson. Gerði nefndin tillögur þessar, er
voru samþyktar:
Ferðakostnaður til
Þorsteins Þórarinssonar. . . kr. 40.00
Halldóru Sigurðardóttur . . — 20.00
Aðalsteins Sigmundssonar. . — 35 00
Þorsteins Sigurðssonar... — 40.00
Björns Guðmundssonar. . . — 75-00
Sigfúsar Hallgrímssonar . . 120.00
Samtals kr. 330.00
Auk þess var samþykt að greiða úr
sambandssjóði nauðsynlegan kostnað við
þinghaldið á þingstaðnum.
20. Lesið bréf frá Jóni Helgasyni prent-
ara (um að æskilegt mundi að styrkja
ekkju Guðm. sál. Hjaltasonar), og var
samþ. þessi tillaga:
»Þingið felur sambandsstjórn að leita
frjálsra samskota til minnisvarða yfirGuðm.
sál. Hjaltason og til styrktar ekkju hans«.
21. Forseti þingsins bar þá fram þessa
tillögu sem var samþ. f e. hlj.:
»Sambandsþingið álítur að eitt af því
sem mestu varðar heill og heiður ísl. þjóð-
arinnar á næstu árum, sé fullnæging bann-
laganna. Vill þingið því alvarlega beina
athygli fulltrúanna að því að leggja frarn
krafta sína til þess að gæta sóma bann-
landsins*.
22. Svohljóðandi tillaga kom frá sam-
bandsgjaldkera Guðm. Jónssyni frá Brennu
og sambandsritara Jóni Kjartanssyni, og
var samþ. í e. hlj.
»Þingið felur sambandsstjórn að fara
þess á leit við Guðm. Davíðsson ásamt
fráfarandi sambandsstjórn, að hann ljúki
við rannsókn á fjárreiðum »Skinfaxa« frá
ársbyrjun 1914 til sambandsþings 1921,
og vottar þingið honum þakkir fyrir vel
unnin störf í þágu sambandsins, fyrst og
fremst, á meðan hann var sanrbandsstjóri
og einnig nú síðast við reikninga »Skin-
faxa«.
23. Þá fór frarn stjórnarkosning, og
hlutu þessir kosningu:
Sambandsstjóri: Magnús Stefánsson.
----ritari: Guðrún Björnsdóttir.
----gjaldkeri: Jón Kjartansson.
Meðstjórnendur: Guðm. Jónsson frá
Brennu og Guðm. Davíðsson.
Kosnir endurskoðendur: Guðm. Kr.
Guðmundsson og Ingólfur Jónsson.
Fyrv. sambandsstjóri Jónas Jónsson frá
Hriflu þakkaði fulltrúunum fyrir vel unnin
störf, og svaraði forseti því með því að
þakka sambandsstjóranum fyrir vel unnin
störf hans í þágu ungmennafélaganna fyr
og síðar. Þakkaði forseti síðan þinginu og
fráfarandi stjórn öll störf þeirra með
snjallri ræðu.
Var síðan sungið: »Eg vil elska mitt
land«, og sambandsþinginu því næst slitið
kl. 220 þ- 28.. júní.
Bj'órn Guðmtmdsson, forseti.
Jón Kjartansson.
Leikmót.
27. og 28. ágúst síðastl. var leikmót
Glímufél. Armann og Iþróttafél. Reykja-
víkur háð. Þátttakan mátti heita góð, en
árangurinn vel í meðallagi. Tvö ný met
voru sett á þessu móti og bæði af Jóni
J. Kaldal, hinum fræga hlaupara okkar Is-
lendinga. Metin voru í 5 og 10 rasta
hlaupi. 5 rastirnar rann hann á 16 m. 20
sek.; metið var 17 m. sett af Guðjóni
Júlíussyni. Nú var hann 16 m. 44 sek.
10 rastirnar rann Jón á 34 m. 138/i0 sek.
Þorkell Sigurðsson 34 m. 25 sek. og Agúst
Olafsson 34 m. 38 sek.; metið var 38 m.
19 sek.
Kaldal hefir dvalið hér heima stuttan
tíma í sumar, en er nú á förum aftur til