Skinfaxi - 01.09.1921, Blaðsíða 8
28
SKINFAXI
Danmerkur. Enginn vafi er á því að hlaup-
arar okkar hafa haft gott af komu Kal-
dals, hefir hann leiðbeint þeim í mörgu
og sýnt þeim livernig á að hlaupa, því
hann hleypur afbragðsfallega.
Mótið fór vel fram og var félögunum
til sóma. Það virðist nú tími til kominn
að íþróttamenn okkar fái tækifæri til að
reyna sig oftar en einu sinni á ári, og
einmitt haustmótin eru jafnvel nauðsýn-
legri en vormótin, því undir haustmót geta
menn verið betur æfðir að minsta kosti
kaupstaðabúar. Halldór Sigurðsson úr-
smiður gaf vandaðan bikar til verðlauna
fyrir 5 rasta hlaup. Bikarinn á að vinnast
þrisvar á haustmóti Armanns eða I. R.
en þarf ekki að vera í röð.
Það er lofsvert að þeir menn sem eru
sæmilega efnum búnir, en hafa ekki hent-
ugleika á að æfa íþróttir, sýna svo mik-
inn áhuga og íþróttum þá velvild að
greiða götu þeirra með fjárframlögum og
gjöfum til verðlauna fyrir afrek í íþrótt-
um. Iþróttamennirnir þakka og launa með
því að æfa sig vel. M. S.
Molar.
10 ára afmæli íþróttavallarins í Reykja-
vík var hátíðlegt haldið 11. júní s. 1. Iþrótta-
félög bæjarins gengu í skrúðgöngu suður
á Iþróttavöll, staðnæmdust við kirkjugarð-
inn meðan stjórn I. S. R. lagði sveig á
leiði 01. Björnssonar ritstjóra.
A vellinum sýndu leikfimi tveir flokkar
frá í. R. undir stjórn Björns Jakobssonar,
en síðan var sest að veizlu í Iðnó. Voru
þar stjórnir allra íþróttafélaga bæjarins
svo og nokkrir íþróttavinir, alþingismenn
og borgarstjóri. Þar var margt talað um
íþróttir og líkamlegar mentir.
Gestamót. Síðastliðinn vetur efndu U.
M. F. í Reykjavík til gestamóts að göml-
um sið. Þátttaka var sæmileg og skemtu
flestir sér bærilega. Guðm. Friðjónsson
hafði lofað að tala nokkijr orð, en sá sem
ekki sást á þessu gestamóti var G. Fr.,
og hefi eg ekki orð frá honum heyrt síðan.
Var það bagalegt að skáldið skyldi bregð-
ast svo unglingunum á síðustu stundu,
því eins og skáldið segir: »Vor fátæka
þjóð má við minna, en missa hugsjónir
skáldanna sinna«. — Ríkarður Beck mælti
fyrir minni Islands og flutti tvö kvæði og
varð þannig til að bæta fyrir glataða son-
inn. Fleiri töluðu á þessu móti og að síð-
ustu var dansað fram á nótt. — Vafalausl
þarf að athuga fyrirkomulag gestamótanna,
ef þau eiga að koma að tilætluðum not-
um fyrir ungmennafélaga-hreyfinguna, og
verður það ef til vill gert við tækifæri.
Samvinna. í síðasta blaði gat eg þess,
að sambandsstjórnin óskaði að kynnast
ungmennafélögum sem dvelja hér í bæn-
um í vetur. Eftir því sem eg hugsa meira
um þetta mál, sannfærist eg betur um
nauðsyn þess. I Rvík er fjöldi ungmenna-
félaga yfir veturinn. Það eru menn úr öll-
um landsfjórðungum. Þessvegna þurfa þeir
að starfa saman; ef vel væri þyrftu þeir
að geta sótt hingað nýjan eldmóð og flutt
hann með sér hver heim í sína sveit. Al-
staðar er meira en nóg að vinna, vantar
ekkert nema áhuga, brennandi áhuga fyrir
framförum og eflingu félagsskaparins.
I haust verður reynt að byrja á þessu
og eru því allir ungmennafélagar sem í
bæinn koma, beðnir að láta sambands-
stjórn vita um heimili sitt og nafn. Það
er lítil fyrirhöfn að leggjá miða í Póst-
h'ólf 516.
Bækur U. M. F. í. Ungmennafélagar fá
bækur sambandsins meðan upplagið hrekk-
fyrir þetta verð:
Þjóðfélagsfræðina . kr. 1,50
Skógræktarritið ' 0,75
Um ungmennafél. Islands - 0,35
Nýju skólarnir ensku. - 0,35
M. 8.
Prentsmiðjan Acta — 1921.