Skinfaxi - 01.07.1922, Side 1
7. BLAl)
SV\tvJax‘\
REYKJAYIK, JULI 1922.
XIII. ÁR
Minnis varðinn,
I síðasta blaði Skinfaxa, vakti hr. Sig.
Kr. Pétursson máls á því, að ungmenna-
félögin gæfu út rit Guðmundar Hjaltasonar
alþýðufræðara. Sambandsstjórn U. M. I7.
I. hefir nú tekið þetta mál til athugunar
og ásett sér að gangast fyrir því að æfi-
saga G. H., og úrvals fyrirlestrar hans
verði gefið út. En því aðeins verður ráð-
ist í þetta, að fyrirsjáanlegt sé, að nógu
margir kaupendur bjóðist að bókinni.
Hefir nú stjórnin sent öllum ungmenna-
félögum landsins og ýmsum mönnum öðr-
um áskriftar lista, þar sem þeir eru beðnir
að safna kaupendum að bókinni.
Því ber ekki að neita að fáum, eða
engum öðrum en ungmennafélögum, stend-
ur nær, að halda minningu Guðmundar
Hjaltasonar á lofti; þessa sæmdar manns,
sem helgaði æskufélögunum og æskulýðn-
um alt sitt starf og alla sína krafta fram
í andlátið. Mega félögin reka minni til
þess, hvað þau eiga honum að þakka. Er
þess vænst að þau, og aðrir góðir menn,
bregðist nú drengilega við, og safni sem
flestum kaupendum að ritinu, og styðji þar
með útgáfu þess. Annan veglegri minnis-
varða munu ekki félögin, eða aðrir, reisa
G. H. en að koma út þessari bók. Hann
hefir lagt til efnið í hana, og það ósvikið,
ætti því ekki að vera nema manns verk
að koma henni fyrir almenningssjónir.
Gert er ráð fyrir að bókin kosti io kr. í
mesta lagi, fyrir áskrifendur, en töluvert
dýrari í lausasölu. Allur ágóðinn af útgáfu
bókarinnar á að renna til ekkju Guðmund-
ar. Það eitt væri ærin nóg ástæða að
hvetja alla góða menn til að styðja að út-
gáfu bókarinnar. Ekkjan er, eins og kunn-
ugt er, einstæðingur og á við mjög þröng-
an kost að búa. Getur það varla talist
vansalaust af þjóðinni, að vita hana líða
skort, án þess að gera eitthvað til að bæta
úr honum. G. H. naut ekki þeirrar viður-
kenningar, hjá þjóðinni sem hann átti
skilið, fyrir æfistarf sitt. Onnur þjóð skildi
hann, og mat starf hans miklu rneira en
vér, þótt undarlegt kunni að þykja.
G. H. ritaði sjálfur æfisögu sina. Hún
er nokkuð löng og verður röskur helming-
ur bókarinnar: Hann lýsir æskustöðvum
sínum og uppvexti mjög ýtarlega, skóla-
vist erlendis og fyrirlestrastarfi, bæði þar
og hér á landi. Hinn helmingurinn verður
úrval úr ritum hans.
Hér skal ekki minnast frekar á æfiferil
G. H. En það eitt má segja, að hver setn-
ing hjá honum ber með sér, að hann elskaði
blómin og börnin, land sitt og þjóð, og
hafði óbilandi traust á öllu því góða og
fagra hjá mönnunum og í náttúrunni.
Þess sárar tók honum, er hann varð
þess var, að hann var misskilinn og lítils
metinn hjá þjóð sinni.
Um það leyti sem hann, kona hans og
börn kvöddu Noreg í síðasta sinn farast
honum þannig orð ;
»Svo margs og mikils megum við sakna
frá Noregi, að oflangt er upp að telja.
Okkur leið mjög vel, en einna best sein-