Skinfaxi - 01.07.1922, Page 2
50
SKINFAXI
ustu árin. Bjuggum þá, á fallégasta svæð-
inu, sem ég hefi séð erlendis. Besta sam-
býlisfólk og langmestar -tekjur. En heilsan
rétt í meðallagi, landið fagurt, en ekki
heilnæmt að þvi skapi, því veðrátta var
heldur hráslagaleg og óstilt. Annars liefir
æfi okkar aldrei verið jafnróleg og skemti-
leg eins og þessi 5 ár í Noregi. Engar
erjur né öfundarmenn. Og þegar á alt er
litið, þá hefi eg sjálfsagt aldrei verið eins
vel skilinn, og starf mitt aldrei verið eins
vel metið, og aldrei áður eins vel launað,
eins og víða í norskum æskufélögum, t. d.
í Orkladal. Þar eins og víðast hvar í
Norergi kom ég ókunnugur öllutn, átti
þar enga vini né kunningja. Eg hafði
engin meðmæli þangað, var ekki einu
sinni boðinn að kotna þar, sem þó var
gert alstaðar. En þeir litu manna best á
hjartalagið. — Það gera Norðmenn að
líkindum flest öllum þjóðum betur, segir
biskup Bang. — Þeir skildu mitt lijarta
manna best.«
Ágrip
af þinggerð sunnlendingafjórðungs
U. M. F. I. árið 1922.
Þingið var háð í Reykjavík 13. og 14.
maí 1922. Mættir' voru 18 fulltrúar frá
10 félögum. A þinginu gerðist þetta:
1. Fjórðungsstjóri vakti máls á hvort
eigi bæri að leysa fjórðunginn upp en í
hans stað yrðu mynduð héraðssambönd.
I málinu kom fram svohljóðandi tillaga
frá Aöalsteini Sigmundssyni og Sigurði
Snorrasyni:
Leggjum til að kosin sé 5 manna nefnd
til þess að kotna fram meö tillögur um
rnyndun héraðssambanda á grundvelli
gildandi sambandslaga. Samþ. í einu hljóui.
I nefnd þess voru kosnir: Aðalsteinn
Sigmundsson, Sigurður Snorrason, líggert
Guðmundsson, Magnús Stefánsson, Sveinn
Sveinsson.
2. Fjórðungsstjóri vakti máls á nreðferð
síðasta Alþingis á bannlögunum og óskaði
að þingið léti álit sitt í Ijósi í þessu máli
sem er eilt af aðal stefnuskrármálum ung-
mennafélaganna. Tillaga um að vísa mál-
inu til nefndar var feld með 5 atl<v. gegn
4. Var þá borin upp svohljóðandi tillaga
frá Aðalstnini Sigmundssyni og Sigurði
Snorrasyni: Vér fulltrúar á fjórðungsþingi
sunnlendingafjórðungs U. M. F. I. teljum
gjörðir síðasta Alþingis gagnvart bann-
lögunum mjög sorglegar. Skorum vér því
eindregið á Ungennafélögin á Islandi að
halda fast við bindindisheit sitt og treyst-
um því jafnframt að sambandsstjórn þeirra
vinni fyrir málið eftir megni. Samþykt í
eintt hljóði. Fundi frestað til næsta dags,
Kl. 10 árdegis 11. maí var fundur settur
aftur.
3. Gjaldkeri gaf skýrslu um fjárhag
fjóröungsins. I sjóði voru kr. 269,26 ó-
greiddir skattar áætlaðir kr. 911,15 skuld-
ir kr. 1,95. eignir samtals umfram skuld-
ir áætlaöar kr. 1178.46. Til að endur-
skoða reilvninga voru kosnir: Þorsteinn
Sigurðsson, Halldóra Sigurðardóttir, Guðm.
Gíslason.
4. Héraðssambandanefndin liafði lokið
störfum sínum. Hafði nefndin orðið sam-
mála um aö bera frám svohljóðandi til-
lögu: Þar sem myndun héraðssambanda
er ákveðin með gildandi sambandslögum
telur nefndin réttast að þingið kjósi bráða-
byrgöarstjórnir fyrir væntanleg héraðs-
sambönd, á Snæfellsnesi, austanfjalls og
fyrir Reykjavík og nágrennið. Samþykt í
einu hljóði. Nefndin lagði fram tillögur
um þannig skipaðar bráðabirgðastjórnir:
J"'yrir Suðurlandsundirlendið: J^orsteinn Sig-
urðsson, Aðalsteinn Sigmundsson, Sigurjón
Sigurðsson. Fyrir Snæfellsnes: Guðmundur
lllugason, Sveinbjörn Jónsson Bragi Jóns-
son. Fyrir Reyjavík og nágrenni: Ellert
Eggertsson, Guðrún Björnsdóttir, Guðbjörn
Guðmundsson.
Samþykt í einu hljóði.