Skinfaxi - 01.07.1922, Blaðsíða 3
SKINFAXI
5. Fjórðungstjóri vakti 'máls á hvernig
skifta bæri eignum fjórðungsins. var sam-
þykt að fela endurskoðendum að koma
frarn með álit og tillögur um fjárskiftin.
6. Fjórðungsstjóri svaraði fyrspurnum
um Þrastaskóg, gat þess að girðingin
yrði endurbætt í sumar, skógfræðingur
sem i sambandsstjórn væri áliti ekki rétt
að grisja skóginn að svo komnu.
7. Endurskoðendur höfðu lokið störfum
og höfðu ekki fundið neitt við reikningana
að athuga og voru þeir samþyktir í einu
hljóði Um skiftingu eigna fjórðungsins lögðu
endurskoðendur til: Að útistandandi skuld-
um væri skift á væntanleg héraðssam-
bönd, þannig að hvert félag greiddi áfallna
skatta sína til þess héraðssambands sem
það kysi að tilheyra. Eftirstöðvar af sjóði
fjórðungsins ef einhverjar yrðu, var í einu
hljóði samþykt að skyldu renna til blaðs-
ins Skinfaxi.
Þar sem nokkur félög höfðu greitt
fjórðungskatt fyrir árið 1922 var ákveðið
að endurgreiða hann aftur til þeirra. Var
fulltrúum falið að koma fé þessu til sinna
félaga og þeim afhent sem hér segir:
Til U. M. F. Drengur kr. 27,00 mótt-
tekið af Hannesi Guðbrandssyni. Til U.
M. F. Egill Skallagrímsson 10.OO móttekið
af Sig. Snorrasyni. Til U. M. F. Skalla-
grímur 23,50 móttekið af Sigurði Snorra-
syni. Til U. M. F. Haukur kr. 15,5° mót-
tekið af Ingvari Hallsteinssyni. Til U. M.
F. Hraunamanna kr. 26,00 móttekið af
Sveini Sveinssyni. Tjil U. M. F. Islending-
ur kr. 30,00 móttekið af Sigríði Hjartar-
dóttur. Til U. M. F. Ásahrepps 17,00
móttekið af Sveini Sveinssyni. Til U. M.
F. Eldborg kr. 20,00 móttekið af Eggert
Guðmundssyni.
8. Samþykt ■ var að senda félögum í
sunnlendingafjórðungi útdrátt úr þinggerð-
inni.
9. Að lokum mintist ritari fjórðungsins
hr. Björn Birnir með nokkrum orðurn
Sunnlendingafjórðungs sem nú hjeldi sitt
5' _
sfðasta þing. En því næst leysti fjórðungs-
stjóri fjórðunginn upp með stuttri minn-
ingar og hvatningarræðu. Fundargerð lesin
upp og samþykt.
Þingi slitið.
Magnús Stefánsson'
forseti.
Guðbj. Guðmundsson, Aðalst. Sigmundsson
ritarar.
Ferð um Dalasýslu,
Anægjustundir. Vel get ég skilið til-
finningar þeirra þjóðflokka, sem aldrei una
við lasta bústaði, heldur eru á sífeldu reiki
frá vöggunni til grafarintiar. -— Þeir hafa
yndi af ferðalögum og reyna að korna því
þannig fyrir að líflð sé alt ein skemtiferð,
og dvalarstaðirnir einskonar áningarstaðir.
Það er fátt sem léttir lundina betur, en
það, að feröast um fögur ókunn héruð. —
Njóta fegurðar héraðsins, og mæta út-
breiddum örmum gestrisninnar. I ferð
minni um Dali í vor naut ég alls þessa í
ríkum mæli, og mér er í fersku minni
áhrifin sem þetta hafði á hugsun mína og
tilfinningar.
Góðir staðliættir. Strjálbýlið og slapm-
ar samgöngur eru höfuðféndur sveitalífsins
á Islandi. ■ — Bygðin er eins strjál og
og grastór á gróðurlausum sandauðnum.
Einangrunin er afleiöing strjálbýlisins en
hún er ógæfuhornsteinn félagslífsins. Fé-
lagslífið í srrjálbygðu landi þarf ótæmandi
erfiöleika að yfrstíga, en góður vilji sigrast
á þeim öllum. — Fjarlægðirnar styttast
þegar kynningin vex, því »til góðs vinar
liggja gagnvegir«.
En þótt strjálbýlt sé hér á landi, þá
eru þó staðhættirnir misjafnir. Sumar
sveitir eru þannig frá náttúrunnar hendi
að íbúar þeirra hafa fengið einangrunina í
vöggugjöf, en í öðruni sveitum eru kynn-
ingar og samgöngumöguleikarnir lagðir
upp í höndur íbúanna. — Mikill hluti