Skinfaxi - 01.07.1922, Qupperneq 8
S K I N F A XI
56
hopp og hí leiðinlegt og er oft óþörf á-
reynsla.
Krafta varnir nefndi eg áuan. A kapp-
glímum höfum við venjulega mest af þeim
að segja. Þessar varnir eru aðallega: að
standa fast, taka á móti bragðinu í ótíma
og bolast. Auðvitað á ekkert af þessu að
vera til í íslenskri glímu, en það er þar
nú sarnt, og oft notað ósleitilega, oftast
mun það koma af því, að varnir niðri eru
ekki æfðar nógu vel. Ráðið til að útrýma
þessum ljótu vörnum, og það verður að
gera, held eg sé það helst aö æfa varn-
irnar niðri.
Eg vil nú skjóta því til þeirra, sem
leiðbeina í glímu, svo og til allra þeirra,
sem glímu stunda, hvort þeir vilja ekki
athuga þessa skiftingu á brögðunum.
Það er öllurn mönnum lóst, að glíman
er nú sem stendur í talsverðri niðurlæging.
Þessa niðurlæging getur enginn maður þol-
að, fyrst og fremst vegna íþróttagildis
glímunnar. og eigi síður vegna ábyrgðar-
innar, sem lendir á herðum þjóðarinnar
um að endurbæta og fullkomna, alt það
sem til framfara og þjóðþrifa má verða.
M. S.
Skínfaxí,
Með þessu blaði byrjar síðari helmingur
af yfirstandandi árgangi Skinfaxa. Eru því
kaupendur hans, þeir sem eiga ógreitt
ársgjaldið hér með mintir á að senda það
hið allra fyrsta, sömuleiðis þeir sem standa
í skuld fyrir eldri árganga. Hentugast er
að senda peninga í póstávísunum, er fást
á hverjum póstafgreiðslustað. Full utaná-
skrift blaðsins er: Skinfaxi Pósthólf 516
Reykjavík. Allmörgum innheimtumönnum
blaösins úti um sveitirnar hafa verið sendar
skrár um skulduga kaupendur. Er þess
vænst að þeir bregðist drengilega viö um
innheimtuna. Hinsvegar mega félagar
treysta því að afgreiðsla og reikningsfærsla
blaðsins er í besta lagi og að öllum fyrir-
spurnum og bréfum verður svarað um hæl.
Viö Ungmennafélagar erum kringum 4000
dreifðir um alt landið. Ef annar hvor félagi
skrifaðist fyrir blaðinu og greiddi skilvís-
lega, þá gæti það vel borið sig. Skinfaxi
heitir á félagana um styrk til þessarar
útbreiðslu svo að tala skilvísra kaupenda
verði tvö þúsund um næstu áramót. Þá
horfir hann ókvíðinn móti framtíöinni og
lofar betra efni og meira lesmáli. Þetta
geta félagar, ef þeir hugleiða hve nauð-
synlegt félagsskapnum er að eiga gott
blað. En Skinfaxi heimtar meira af eig-
endum sínum. Félagsmenn ættu að senda
blaðinu meiri fréttir af störfum sínum en
þeir gera, eða nýjar tillögur um félags-
störfin. Æfisögur félaganna eru líka nrargar
þess verðar að vera birtar í blaðinu þó
að stuttar séu. Það er mjög mikilsvert að
félagsmenn, víðsvegar um landið, athugi
að ein smátillaga í þeirra eigin litla félagi
sé hún boðuð öðrum félögum í blaðinu,
getur algerlega markað stefnu alls sam-
bandsins í því máli —- hugsun eins ein-
asta félaga > hrundið vorum hag á leið
— með heillar aldar taki«.
Ný bók. Fornleifafélagið hefir gefið
út bók, um Fornleifar á þingvöllum,
með 2 uppdráttum, eftir Matthías
pórðarson fornmenjavörð. Höfundur-
inn getur um eigi færri en 37 búðar-
tóttir, sem glögt sést votta fyrir á
þingvöllum. Hann lýsir stærð, lögun og
útliti þeirra mjög nákvæmlega, og rek-
ur sögu þeirra, að svo miklu leyti sem
það er unt.
Bókin er hin fróðlegasta og ágætur
leiðarvísir öllum, sem vilja skoða sig
um á þingvöllum og vita deili á forn-
leifunum þar. G. D.
Prentsmiöjau Acta.