Skinfaxi - 01.08.1922, Side 4
6o
SKINFAXI
S kinf a x i
Utgefandi: Samb. Ungmennafél. Islands
12 blöð á ári. Verð 3 krónur. Gjalddagi
fyrir 1. júlí.
Ritstjórn, afgreiðsla og innheimta: Skin-
faxi Reykjavík Pósthólf 516.
vera. Gróðurinn er þroskavænlegur og
fjölbreyttur, landið einkennilega öldótt og
því skjólsælt gróðrinum, þar eru villi-
býflugur, þar er tjaldur, þrostur og margt
annara söngfugla.
Þrastaskógur er staður sem við ung-
mennafélagar erum kjörnir til þess að
yrkja og verja« og sjálfkjörinn fundar-
staður okkar sem búum í næstu héruðum.
Snemma næsta vor þarf að ákveða fundar-
daginn og sæki þá fundinn þau félög a.
m. k. sem eiga ekki lengri sókn en U.
M. F. Reykjavíkur, þá getur sá fundur
orðið félagsskap okkar til mikillar eflingar.
Reykvíkingur.
Álfaskeið.
Flestir Ungmennafélagar um Suðurland
og víðar hafa heyrt nefnt Alfaskeið, en elcki
hafa ailir séð það. Alfaskeið er einn ein-
kennilegasti blettur landsins. Það ,er dal-
verpi sunnan í Langholtsfjalli í Ytri-hreppi
hömrum girt að nokkru leyti. I dalbotn-
inum pallslétt flöt og grasgrónar brekkur
í kring. Imynd grískra hringleikasvæða
myndað af íslenskri náttúru.
U. M. F. Hrunamanna hefir valið sér
þetta svæði til sumarmóta. Hin árlega
Alfaskeiðsskemtun var að þessu sinni
haldin sunnudaginn 30. júlí. Hófst hún
með messugjörð undir berum himni. Þar
flutti prédikunina séra Kjartan Helgason í
Hruna; afbragð bæði að efni og formi.
Því næst var kept í nokkrum íþróttum,
hlaupi, stökki o. fl. Eftir það flutti Helgi
Valtýsson snjalt erindi um járnbrautarmál-
ið og framtíð þess hér á landi, og síðast
flutti séra Magnús Helgason snildarlegan
fyrirlestur um Kristófer Brún. Var þá
orðið áliðið dags og hurfu þá hinir eldri
heim, en yngra fólkið skemti sér litla
stund við dans og leika.
Veður var hið fegursta, helliskúrir
sveimuðu kringum Alfaskeið, en engin
lieimsótti dalinn fyr en lokið var skemt-
uninni.
Þarna var fjölmenni mikið úr Hreppun-
um og nærliggjandi sveitum. Engin var
þar lögregla og engir lögbrjótar. Yfir
öllu mótinu hvíldi kyrlát gleði. »Gaman
var á Alfaskeiði eins og vant er , sagði
fólkið, þegar það reið heim í kvöldkyrð-
inni.
Álafosshlaupið.
Vorið 1921 gáfu bræðurnir Sigurjón og
Einar Péturssynir vandaðan bikar, sem
keppa skyldi um í hlaupi, frá Klæðaverk-
smiðjunni »Alafoss« til Reykjavíkur, er
það um 18 km. Efni bikarsins er birki
úr Hallormsstaðaskógi, en bikarinn er
skorinn af Geir G. Þormar frá Geitagerði
í Fljótsdal.
Kept var um þennan bikar fyrst 3. júlí
1921., og vann í það sinn Þorkell Sig-
urðsson í Reykjavík. Nú var kept um
bikarinn annað sinn 23. júlí í sumar og
vann þá Guðjón Júlíusson frá Grafarholti;
hann var hálfri sek. á undan Þorkeli.
A meðan hlaupið fór fram, var kept í
íslenskri og grísk-rómverskri glímu. Is-
lensku glímuna vann Sveinn Gunnarsson
stud. med., bróðir Tryggva Gunnarssonar
fyr. glímukonungs. Glímufélagið Armann
sér altaf um hlaup þetta, en það á að
fara fram í júlí ár hvert. Bikarinn þarf að
vinna 3var til eignar.
M. S.