Skinfaxi - 01.09.1922, Síða 4
68
SKINFAXI
Skinfaxi
Útgefandi: Samb. Ungmennafél. íslands
12 blöð á ári. Verð 3 krónur. Gjalddagi
fyrir 1. júlí.
Ritstjórn, afgreiðsla og innheimta: Skin-
faxi Reykjavík Pósthólf 516.
— sem er þó það stærsta — að vera
óhultari um líf sitt, máske oft rétt
utan við klöppina, eins og svo mörg
dæmi eru til að menn farist, og það
stundum í allgóðu veðri örskamt frá
landi, heldur einnig annað, sem kem-
ur til greina, sem foreldrar barna úr
kaupstaðnum hafa veitt eftirtekt, sum
þeirra barna, er hafa lært sund ásamt
fleiri í þróttum í Reykjanesi, sem er
langt frá kaupstaðarmollunni og ryk-
inu, þau hafa verið velluleg og veil
heilsu, oft orðið að hverfa heim úr
barnaskólanum í nokkra daga, af því
þau hafa ekki þolað lesturinn og kyr-
seturnar, að jeg þó láti þess ekki óget-
ið, að einmitt þessi börn hafa ekki
skrópað, heldur hafa það verið hreinir
íslendingar, fullir kapps og metnaðar í
framsókn lærdómsins. En hvað skeð-
ur? Jú, þessum vesalingum er lofað
inn í Reykjanes til að nema sund; þar
eru þeir vaktir kl. 7 árdegis, klæða
sig og fá sér hressingu til kl. 8. pá
leggur fylkingin á stað niður á grund
í leikfimi. Kl. 9 hefst sund í flokkum;
er þá daglega valinn 3—5 drengja flokk
ur til að fara yfir nesið til að sækja
mjólk, sem nemendur kaupa frá Reykj-
arfirði, stundum líka hverabrauð,
hænuegg, smjör, skyr og fleira. Slík
fæða, ásamt annari kraftgóðri, sem
þau hafa með sér og er send úr kaup-
staðnum, kemur þrótti í hina lingerðu
líkami litlu íþróttamannanna, sem all-
an daginn frá kl. 7 árd. til kl. 9 síðd.
eiga að vera að hamast í einhverjum
íþróttum. pá spilti ekki hið heilnæma
loftslag, sem altaf er nægur forði af
á víðavangi upp til sveita. Eftir einn
mánuð koma svo þessir útlagar heim
til pabba og mömmu spilandi kátir og
fjörugir, kafrjóðir og feitir stökkva
um háls þeirra saklausir og frjálsleg-
ir, eins og gerist um fólk á þeirra
aldri, og þakklæti er letrað með lukku
á brá, sem ljómar af barnslegrú gleði.
En það sem foreldrarnir hafa að
launum er það, að þessi veikbygðu
börn þeirra hafa nú tekið þeim
stakkaskiftum, að nú þurfa þau aldrei
að hætta lærdómi í skólanum vegna
sömu ástæða og áður. þessu hafa ef
til vill ekki allir aðstandendur barn-
anna veitt eftirtekt, og telja það þess-
vegna máske ýkjur, en eg gæti þó nefnt
fleiri en eitt dæmi.
Nú lifir U. M. F. „Huld“ í brenn-
andi eftirvæntingu eftir sýslufundin-
um og hvað hann muni gera í því að
láta gera við sundpollinn, sem nú rek-
ur beina nauðsyn til. — Hvað „Huld“
tekur til bragðs, ef styrkurinn fæst
ekki, eða réttara sagt ef sýslan lætur
ekki gera við í Reykjanesi, læt eg óget-
ið að sinni, en eitt er víst, að ef nefnt
félag hefði bolmagn til að framfylgja
brennandi áhuga sínum fyrir íþrótta-
náminu í Reykjanesi, sem er einhver
best fallnasti staðurinn á voru landi til
slíks, þá mundi fyrst' og fremst alt
haft þar í góðu ástandi, svo yrði auð-
vitað þetta venjulega námsskeið eins
og vant er, frá miðjum júní til í miðj-
an j úlí. Svo yrði reynt að halda úti öðru
f.vrir fullorðnar stúlkur eingöngu, því
„Huld“ lítur svo á, að kvenþjóðinni sé
þess einnig þörf. Svo væri æskilegt og
stórnauðsynlegt að geta haft námsskeið
fyrir sjómenn að haustinu strax og þeir
hætta róðrum. — En eitt er víst, að
hvað sem sýslunefndin gerir í sund-
málinu, þá vantreystir „Huld“ ekki