Skinfaxi - 01.09.1922, Side 5
SKINFAXI
69
sýslunefndarmanni Nauteyrarhrepps,
sem hefir í fleiri ár barist með atorku
hins sanna dugandi manns fyrir áfram-
haldi sundsins, maðurinn er Halldór
Jónsson á Rauðamýri, og hefir félagið
fyrir þremur árum gert hann að heið-
ursfélaga sínum; höfum við ungmenni
Nauteyrarhrepps margsinnis orðið
þess vör, að maður sá hefir meira yndi
af að örfa æskuna til heilbrigðra þjóð-
arþarfa, heldur en bæla niður og kæfa
í fæðingunni hina bráðu, funheitu
framfaraþrá íslensks uppvaxandi æsku-
lýðs. Væri vel ef hvert ungmennafé-
lag eða hreppsfélag ætti þó ekki væri
nema einn slíkan mann, sem á hverj-
um fundi gæti veitt birtu og yl bjart-
sýnisins út til huga meðlimanna, þrátt
fyrir alla erfiðleika. Vert er þess að
geta, sem vel er gert.
ísafirði í september 1922.
Jak. p. pórðardóttir.
----o----
Útdráttur
úr fyrstu þinggerð Héraðssambands
U. M. F. E. 8. apríl 1922.
þingið var sett á Akureyri 8. apríl
af fyrverandi fjórðungsstjóra Jóni
Sigurðssyni. Mættir voru 16 þing-
menn. Iléraðssambandið mynda eftir-
töld 10 ungmennafélög-: U. M. F. Ak-
ureyrar, Akureyri, U. M. F. „Árroð-
inn“, Kaupangssveit, U. M. F. „Dags-
brún“, Glæsibæj arhreppi, U. M. F.
„Framtíð", Hrafnagilshreppi, U. M. F.
Saurbæjarhrepps, Saurbæjarhreppi, U.
M. F. Svarfdæla, Dalvík, U. M. F.
„Vorboðinn“, Saurbæj arhreppi, U. M.
F. „Reynir“, Árskógshreppi, U. M. F.
Ólafsfjarðar, Ólafsfirði.
þessar samþyktir vonj gerðar:
1. Sambandslög H. U. M. F. E.
2. íþróttamál. Svohljóðandi tillaga
samþykt:
„þingið lætur ánægju sína í ljós yfir
loforði sambandsstjóra U. M. F. í. um
að senda íþróttakennara hingað í haust.
það ákveður að áhersla sé lögð á það,
að komið sé á fjölbreyttu íþróttanáms-
skeiði hér á Akureyri í haust, og heim-
ilar héraðsstjórn fé úr sjóði héraðs-
sambandsins því til framkvæmda eft-
ir nánari tillögum fj árhagsnefndar og
felur stjórninni allar framkvæmdir við-
víkjandi námsskeiðinu“.
8. Fyrirlestramál. Svohljóðandi til-
laga samþykt:
„þingið felur héraðsstjórn að útvega
hæfan fyrirlesara til þess að ferðast
milli félaga í héraðssambandinu og
halda þar fyrirlestra. Öðrum félögum á
héraðssvæðinu skal einnig gefinn kost-
ur á fyrirlesara, ef þau óska og kring-
umstæður leyfa, þó gegn sanngjörnu
endurgjaldi. Skal héraðsstjórn ekki síð-
ar en fyrir 1. nóvember n. k. gefa fé-
lögum innan héraðssambandsins kost á
að fá fyrirlesara á ákveðnu tímabili,
sem hún tiltekur. Skulu félögin ekki
síðar en mánuði áður en fyrirlestra-
ferðir hefjast, skýra félagsstjórninni
frá hve mörgum fyrirlestrum þau óska
eftir, og síðan semja um hvernig þeim
verði hagað. Valinn skal fyrirlesarinn
með tilliti til þess, að fyrirlestrarnir
verði fræðandi, skemtandi og í þeim
anda, að þeir verði ungmennafélags-
skapnum til sem mests gagns.
Veitt skal svo mikið fé til fyrirlestra-
starfseminnar sem fjárhagurinn leyfir.
þingið leggur áherslu á að fyrirlestrar
farist ekki fyrir á næsta vetri og telur
rétt að horfa ekki í kostnað ef svo ber
undii'.
Ilafi eitthvert félag aðstöðu sinnar
vegna ekki tækifæri til þess að nota
fyrirlesara sambandsins, hefir héraðs-
stjórnin heimild til þess að styrkja fé-