Skinfaxi - 01.09.1922, Qupperneq 8
7 2
SKINFAXI
um íslenskan bónda, að hann mundi í
sjó drukna. Árin liðu. Bóndinn varð
gamall maður, en varaðist að stíga
fæti út í skip alla æfi. Svo fór þó, að
hann fanst örendur í saltvatnspolli í
bæjargöngunum. Ilafði það runnið af
votum sjóklæðum heimamanna hans.
Meðan þjóðin heldur áfram að ala
upp ungu kynslóðina eftir erlendum
staðháttum, en vanrækir þjóðlegt upp-
eldi, verður hún eins og reyr af vindi
skekinn. Starfsmenn þjóðfélagsins, þeir
sem sækja auðinn í skaut náttúrunn-
ar, eru hvergi óhultir. Slys og harm-
ar dynja á hundruðum heimila árlega.
Forlögin dæma hana til þess að drukna
í sjóklæðapollinum. Bogi.
----o-----
Handrituð blöð. Mörg ungmennafé-
lög’ halda úti handrituðum blöðum, og
hafa sum þeirra gert það árum sam-
an. petta er ágæt æfing fyrir félags-
menn, í því að hugsa og rita móðurmál
sitt; ættu sem flestir þeirra að færa
sér það í nyt. Blöðin eru lesin upp á
fundum til skemtunar og fróðleiks þeim
sem á hlýða. Skinfaxi tæki með þökk-
um góðar og vel samdar greinar úr
slíkum blöðum, því að mörg þeirra
flytja, að sögn, oft ágætar greinar,
sem eiga erindi til allra ungmenna-
félaga á landinu.
Til félaganna. Sambandsstjórnin hef-
ir nú fengið allmargar skýrslur frá
ungmennafélögunum yfir síðastl. ár, en
þó eru margar ókomnar enn. þess er
vænst, að þau félög, sem eiga eftir að
senda skýrslu fyrir árið 1921, komi
þeim sem fyrst til Sambandsstjórnar-
innar.
Pappír og prentun er enn þá svo dýr,
að stjórnin hefir ekki séð sér fært, enn
sem komið er, að láta prenta skýrslu-
eyðublöð handa félögunum. Hún hefir
þó hug á að bæta úr þessu, þegar frá
líður. En þangað til eru félögin beðin
að útbúa skýrsluformin sjálf, sem næst
eftir eldri fyrirmyndum, er þau kynnu
að hafa við hendina.
þegar skýrslur eru komnar frá öll-
um félögunum, munu nöfn og heimil-
isföng þeirra verða birt í Skinfaxa.
Fyrirlestraferð. Helgi Valtýsson er á
fyrirlestraferð um Vestfirði, að tilhlut-
un Sambandsstjórnarinnar. Frá ísafirði
fer hann norður á Siglufjörð og verður
staddur þar um 13. okt. þaðan ferð-
ast hann um Eyjafjarðarsýslu og held-
ur fyrirlestra hjá ungmennafélögunum
þar nyrðra. Félögin ættu að greiða götu
hans sem best. því miður hefir hann
ekki tíma til að fara víðar um sveitir
Norðurlands í þetta sinn.
Boðsbréf að æfisögu og fyrirlestrum
Guðm. Iijaltasonar hefir nú verið sent
út um land til fjölda ungmennafélaga
og annara góðra manna. Er þess vænst
að menn bregðist vel við og safni sem
flestum áskrifendum að þessum ritum
Guðmundar, svo að hægt verði að gefa
þau út.
Ef einhverjir kunna að geta safnað
áskrifendum, sem ekki hafa fengið
boðsbréfið, eru þeir beðnir að snúa sér
til Sambandsstjórnarinnar sem fyrst.
Guðrún Bjömsdóttir frá Grafar-
holti hefir sagt sig úr sambandsstjórn-
inni sökum þess, hve óhæga aðstöðu
hún á til að sækja stjórnarfundi og
taka þátt í störfum sambandsins í
Reykj avík.
Borgið Skinfaxa og útvegið honum
nýja og skilvísa kaupendur.
Leiðrétting. U. M. F. Afturelding á
aðeins hlut í húsi því, sem verið er að
reisa í sveitinni, og getið er um í 7.
tbl. Skinfaxa.
Guðjón Júlíusson er í síðasta tbl.
sagður fæddur í Kjós, en á að vera í
Mosfellssveit.
Prentsmiðjan Acta.