Skinfaxi - 01.10.1922, Blaðsíða 1
Ungmennafélögin.
(Örstutt ágrip).
I.
Pyrsta ungmerínafélagið hér á landi
var stofnað á Akureyri árið 1906, síðan
eru liðin 16 ár. A þeim tíma lmfa fleiri
og færri ungmennafélög verið stofnuð
í öllum sýslum á landinu. Er varla
dæmi til þess að nokkur félagsskapur
hafi náð svo skjótri útbreiðslu á svo
skömmum tíma. Þetta er þó ekki því
að þakka, að menn hafi verið sendir út
um land i þvi skyni að predika fyrir
æskulýðnum að stofna ungmennafélög.
Pélögin hafa orðið til af eigin hvötum
æskulýðsins. Þetta bendir á að jarð-
vegur fyrir slikan félagsskap var hér
ágætur. Og ávextirnir hafa sýnt, að
hann var góður. Ungmennafélag mun
nú vera nálega í annari hverri sveit á
landinu, eða um 90 alls, og félagsmenn
eitthvað á fjórða þúsund. Þó verður
ekki sagt um þetta. með fullri vissu,
vegna þess að nokkur félög eru enu
íyrir utan Sambandið, og sum Sam-
bandsfélögin hafa enn ekki gefið skýrslu
fyrir siðastliðið ár, er því ekki hægt
að byggja hér á órækum tölum.
Plest ungmennafélögin eru stoinuð á
árunum 1906—1916. Á því tímabili munu
vera stofnuð um 70 félög eða til jafn-
aðar 7 félög á ári, og þá var tala fé-
lagsmanna komin hátt á þriðja þúsund.
Pyrsta Sambandsþing ungmennafélag-
anna var háð á Akureyri árið 1908 og
nokkur hluti þess, sama vorið, í Reykja-
vík. Síðan hafa verið háð 4 Sambands-
þing, og öll hafa þau komið saman í
Reykjavík. Næsta Sambandsþing á að
koma. saman, að forfallalausu, vorið
1924.
Sambandsþingin eru haldin þriðja
hvert ár, og sámbandsstjórnin kosin til
þriggja ára í senn. Æskilegast væri þó
að þingið væri oftar háð, en vegna
fjárskorts Sambandsins annars vegar,
og erfiðra og dýrra samgangna hins
vegar, er það ókleift. Nú er þegar búið
að skifta félagsskapnum í smærri sam-
bönd, hin svo nefnd héraðssambönd, i
staðinn fyrir fjórðungssambönd,sem áður
voru og náðu yflr stórt svæði. Þetta
ætti að vera liagfeldara fyrir félögin.
Kostnaðurinn er minni fyrir l'ulltrúana
að sækja héraðsþingin en fjórðungs-
þingin.
Ungmennafélögin liafa staðið misjafnt
áð vígi að rækja störf sín, sem við er
að búast, og liggja margar orsakir til
þess. Meðan ungmennafélagsskapurinn
var ungur, og óreyndur, var ekki laust
við að sumum eldri mönnum stæði liálf-
gerður stuggur af þessum nýju sam-
tökum unga fólksins. En þeir komust
brátt á aðra. skoðun er tímar liðu, og
þeir sáu live heilladrjúgur félagsskapur-
inn varð. Vel má það samt vera, að
kali sá, sem andaði frá sumum hinna
eldri manna, hafl að ýmsu leyti dregið
kjark úr félagsmönnum, og stutt að