Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.10.1922, Blaðsíða 2

Skinfaxi - 01.10.1922, Blaðsíða 2
74 SKINFAXI því að nokkur ungmennafélög gáfust upp að starfa. Þó skal ekkert um þetta fullyrt. En á hi.tt má líta, hve félags- mönnum hefir verið afar örðugt að sækja f'undi í stfjálbygðum héruðum landsins vegna vondra samgangna og líka sakir fólksfæðar, sem ætíð er mikið mein allra samtaka og félagslífs í sveit- um. Orsökin til deyfðar félagsmanna getur legið í þessu. Aðrar orsakir valda því, að ungmennafélög í kaupstöðum og þéttbygðum sjávarþorpum hafa hætt að starfa. Það má kenna illum afleið- ingum styrjaldarinnar miklu, svo sem fjárkreppu, dýrtíð, atvinnuskorti o. fl. 1 kaupstöðunum er líka margur miður hollur félagsskapur, þótt glæsilegur sýn- ist á yfirborðinu, sem glepur fyrir æsku- lýðnum, og fjarlægir huga hans frá ungm enn afélagsmálun i. Sveitunum mundi sannarlega bregða við, ef ungmennafélögin hyrfu þar al- gerlega úr sögunni. Margar sveitir bera ýmsar menjar þess að ekkert ung- mennáfélag hefir starfað í þeim, þar á sér oft stað meira og minna ósamlyndi, nábúakrytur og illkynjuð hreppapólitík. Þar sem fjölment ungmennafélag er starfandi kemur slíkt varla fyrir. Pé- lagsskapurinn kemur bæði beinlínis og óbeinlínis í veg fyrir þetta. Hann elur menn upp í samstarfi og samhjálp, og glæðir félagslyndi og samvinnu sveita- búa. Hér verður aðeins drepið á nokkur atriði í stefnuskrá ungmennafélaganna jafnhliða og getið verður um helstu störf- in sem félagsskapurinn hefir fengis við undanfarin ár, og starfar að enn í dag. II. I stefnuskrá ungmennafélaganna er tekið fram, að félagsmenn megi ekki neyta víns. Það var happ að þetta á- kvæði var sett í stefnuskrána, því að án þess væri félagsskapurinn ekki til, í' þeirri mynd, sem hann er núna. Frelsi ungmennafélaga til að neyta víns, liefði gert félagsskapinn að skrípaleik, sem allir siðaðir menn féngju óbeit á. Ung- mennafélagsstörfunum cr þannig varið, að áfengisnautnin getur ekki samrýmst þeim. Ungmennafélagar munu sýna það enn sem fyr, að þeir meta meira heið- ur sinn en svo að þeir láti tælast af áfengi, þó að sala þess sé nú lögboðin í landinu. Það er tekið fram í lögum Sambands U. M. P. I. að ungmennafélagar skuli byggja starfsemi sína á kristilegum grundvelli. Þó að þetta atriði hefði aldrei verið sett inn í stefnuskrána, myndu félögin ekki, þrátt fyrir það, hafa aðhafst neitt ókristilegt. En úr því að ákvæði þetta var í fyrstunni sett í stefnuskrána er rétt að hafa það í henni áfram. Pélagsmenn liafa aldrei gert trú- mál að umræðuefni á fundum sínum, þeir vita sem er að slíkar umræður geta valdið stælum og vakið sundrung innan félagsins. Hver ungmennafélagi er sjálfráður um það hvaða skoðun hann hefir í trúarefnum, og hvaða leið hann velur sér að því marki, sem hann stefn- ir að i því efni. Upp úr sama jarðveg- inum, og á sama blettinurn, vaxa oft mörg mismunandi blóm, en ölium er það sameiginlegt að vaxa upp á móti ljósinu og ylnum. Svipað mun vera um trúarskoðanir manna. Ungmennafélögunum rná telja það til gildis að þau láta sig litlu skifta um pólitískar skoðanir félagsmanna. Pólitík er því sjaldan eða aldrei höfð fyrir um- ræðuefni á félagsfundunr. Einstök félög hafa jafnvel bannað slíkt í lögunr sínum, enda gæti pólitískar umræður, ekki síð- ur en trúmálaræður, endað með þrasi og stælunr. Pélagsskapurinn liefir sýnt það og sannað að einstaklingarnir geta unnið sanran í sátt og samlyndi, þrátt fyrir misnrunandi skoðanir þeirra í póli-

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.