Skinfaxi - 01.10.1922, Side 3
SKINFAXI
75
tík og trúmálum. Umræðuefni á fund
um og verkefni félagsskaparins er ó-
þrjótandi, þó að þessum málum sé al-
veg slept.
(Framh.) G. D.
---o----
Sameign félaganna.
i.
Inngangnr.
í síðustu tölublöðum Skinfaxa hefir
talsvert verið ritað um sameign félag-
anna, Þrastaskóg, enda er hann þess
verður að honum sé gaumur gefinn, því
öllu fegurri blett munu félögin tæpast
eiga en Þrast-askóg. Má þó nokkuð bæta
liann og prýða, ef unnið er að því með
heppilegu samstarfi og samstiltum vilja
og festu.
A heppilegasta tíma mun Skinfaxi
hafa hafið umræður um þetta mál, sem
vafalaust má telja að verði eitt með
stærstu málum félaganna á næstu ár-
um, ef þau á annað borð leggja þar
hönd að verki, sem lítill vafi leikur á,
að eigi verði. Gfefandans vegna og sjálfra
sín geta þau ekki annað.
Styrjaldartímanum má nú telja lokið
í bili, en afleiðingar hans munu að milclu
leyti hafa haft lamandi áhrif á áhuga-
mál ungmennafélaganna og framkvæmd-
ir þeirra, sem annara landsmanna. Nú
eru félögin farin að rétta úr sé aftur,
og má þá meiri framkvæmda af þeim
vænta, en nokkuru sinni áður. Er þá
um að gera að verkefni séu næg fyrir
hendi, eigi einungis innan félaganna,
heldur og líka handa þeim öllum að
AÚnna að í sameiningu og samvinnu.
Með þetta fyrir augum, verður tæp-
lega annað álitið en að Þrastaskógar-
málinu hafi verið lireyft á heppilegasta
tíma.
Þá er og eigi minna umvert, að þau
mál, sem ná þurfa til allra félaga á
landinu, til góðrar yfirvegunar og rösk-
legra framkvæmda að rannsökuðu máli,
berist þeim á haustin, um það leyti sem
félagsfundir alment byrja fyrir alvöru.
Sé sama málið rætt, svo að segja sam-
tímis, í öllum ungmennafélögum lands-
ins, og þar að auki opinberlega í Skin-
faxa, mætti það undur teljast, ef eigi
yrðu af þeim umræðum talsverðar fram-
kvæmdir.
II.
Álit félaganna.
Það sem nú skiftir mestu máli er að
félögin taki þegar til athugunar mögu-
leikana fyrir því, að varðveita hina
sameiginlegu eign sína, svo húh verði
þeim eigi einkisýirði, og álit þeirra í
engu rýrt.
Niðurstöðu þá, er yrði í hverju félagi
fyrir sig, þyrftu stjórnir lelaganna að
senda hið fyrsta til birtingar í Skinfaxa.
Það mundi vafalaust hafa mikilvæg
áhrif á málið og afstöðu annara félaga,
sem sein yrðu annars fyrir með að taka
beina afstöðu.
Þetta er hið fyrsta og sjálfsagða, sem
ekkert félag getur, sóma síns vegna,
látið undir höfuð leggjast.
í öðru lagi ætti og hvert félag að
talcá afstöðu til væntanlegrar liúsbygg-
ingar í skóglendi félaganna, sem tví-
mælalaust er talið, að mundí verða til
ómetanlags gagns fyrir félögin í næstu
framtíð, þó ótalinn sé alveg hinn óbeini
styrkur, sem þau fengju af því í auknu
áliti.
Það er þegar vitanlegt um vilja og
áhuga Sambandsstjórnar, eða að minsta
kosti sumra úr. henni, í þessum málum.
Ef við erum henni samdóma um mál-
in, ættum við heldur að glæða hinn
vaknandi áhuga, en að draga úr hon-
um. En umfram alt, að láta álit okkar
í ljósi skýrt og greinilega, svo eigi