Skinfaxi - 01.05.1923, Side 1
1. BIjAI)
REYKJAYÍK, MAÍ H)23.
XIV. ÁIl
Skinfaxi.
Skinfaxi hefir átt því láni að fagna, að
nokkrir af ritfærustu mönnum þjóðarinnar
hafa gerst ritstjórar hans, og veitt honum
lið um lengri eða skemri tíma. ljess vegna
hefir honum margt áunnist í ýmsum efn-
um. Hann hefir ekki einungis látið sig
miklu máli skifta flest það, sem talið er
vera innan vébanda ungmennafélaganna
og kalla má séreign þeirra -— og er það
þó ærið margt. Hann hefir einnig þrásinn-
is bent á hreysti og hugprýði gullaldar-
innar og fjölmargt það, sem þá hóf þjóðina
til vegs og gengis. Og hann hefir heldur
ekki gleymt að minnast þess, sem lýst
hefir lengst og best um dimma daga á
myrkustu öldum Islands bygðar og loks
varð árröðull framsóknar baráttunnar.
Blaðið hefir frá byrjun lagt kapp á að
stýðja og vernda alt það, sem á einhvern
hátt vill hlúa að íslensku þjóðerni. Það
hefir jafnan látið sig miklu skifta fræðslu
og skólamál. Hefir það viljað fyrst og
fremst að öllum ungmennafélögum yrði
það vel ljóst, að fræðsla og þekking er
einn megin þáttur allrar menningar.
íþróttir hafa að sjálfsögðu verið óska-
barn Skinfaxa, því þær eru einskonar afl-
gjafi æskunnar og vona hennar. Þær hafa
oft og tíðum lagt undirstöðuna að verkum
ýmsra nýtustu afburðamanna; og við að
iðka þær hafa menn keypt sér einskonar
lífeábyrgð, sem er peningunum æðri.
Skinfaxi hefir löngum vitað að jarðrækt
°g þjóðlegur iðnaður er lífsskilyrði þess,
sem vill vaxa og starfa á okkar landi, og
það er óbifanleg trú hans, að hægt sé að
klæða fjöllin og slá gull úr grjótinu.
í stuttu máli: blaðið hefir átt þátt í
flestum þjóðþrifamálum, sem ÍHendingar
hafa ha'ft með höndum siðast liðin ár. En
fyrsta og helsta hlutverk þess verður þó
alt af það að bera hugskeyti milli ung-
mennafélaga. Það hefir tengt þá bræðra-
böndum og þrásinnis sýnt þeim sólríka
gróðurreiti hálfnuminna landa.
Skinfaxi hefir þannig setið við það rnikla
skákborð ungmennafélaga, sem lagt hafa
reiti sína um alt land. Vonandi gefst síð-
ar færi á aö sýna hvernig margir afleikj-
um hans hafa haft ótnetanlega þýðingu
fyrir æskuna og alþjóðarheill.
En þó málgagn ungmennafélaganna hafi
víða farið, og viti að margt er að vinna,
hefir það þó ekki lagt leið sína um þoku-
land stjórnmálanna, og er ráðið í að fylgja
þeirri reglu.
Skinfaxi hefir jafnan horft hugutnstór
og gunnreifur móti sól og sumri, enda er
það í góðu samræmi við verksvið hans
og starihætti. Þeir ungmennafélagar munu
því eflaust margir, sem hafa vænst þess að
blaðið þeirra brigði síst af öllu þessum
háttum sínutn nú, þegar vorið kallar alt
til lífsins og eyjan okkar berst inn í nótt-
lausan sólarheim næstu mánuði.
Þess vegna heitir Skinfaxi á alia góða
vini, unga Og aldna, menn og konur, til
liðs við sig. Við skulum horla vongóðir á
framtíðina, þó okkur finnist stundum að
lítið vinnist.