Skinfaxi - 01.05.1923, Síða 2
2
SKINFAXI
Æfi Skinfaxa er enn svo stutt, að tæp-
ast verður af henni ráðið neitt um það
hverju hann fær til leiðar komið, á kom-
andi árum, ef hann nýtur góðra og dug-
andi manna.
Sendið blaðinu greinar hvaðanæfa að.
Ritið um alt, sem á einhvern hátt snertir
málefni ungmennafélaga. Ykkur tnun ljóst
að hér er víðáttumikið verksvið, og um
auðugan garð að gresja. I huga og hjört-
um ungmennafélaga, um allar sveitir þessa
lands, liggur fólginn Mímisbrunnur. sem
er tær eins og bergvatnið, heiðblár sem
skýlaus vorhiminn og ótæmandi eins og
hafið. Frá þessum brunni þurfa að liggja
lífæðar til Skinfaxa. Hans mikla hlutverk
er að vera hið sterka hjarta, sem slær í
öllum ungmennafélagsskap á okkar snæ-
krýndu sólarey.
G. B.
og honum bendir
á hærri vegu.
Skoðum í trúar
skæru ljósi
atburð þennan
og alt sem hryggir.
Gátur lífsins
á liðnum öldum
á þann hátt voru
hollast ráðnar.
Þó að líkaminn
liðinn hvíli
Ijarri ástvinum
æsku bygðar;
andinn lifir
hinn ódauðlegi,
hafinn hátt yfir
heim og tíma.
t
Bjarni Jón Jónsson
frá Valshamri
formaður U. M. F. »Unglingur«
Druknaði 12. maí 1922
(Kveðja frá félagssystkinum hans)
Stutt er að minnast
stundu þeirrar
er formaður »Unglings«
okkur kvaddi.
Þá var all-þarri
okkar huga
að hinsta kveðja
hans það yrði.
Æskan óreynda,
unga, glaða
brosandi fram
á brautir lítur.
Alvara lífsins
andann þroskar
Kveðjum við þig
með það í huga,
bróðir vor kær
sem burt ert horfinn.
Ljúf er heimför
til landsins bjarta
öllum, sem ganga
guðs á vegi.
Þigg nú að síðustu
þakkir okkar
lyrir samstarf
og félagslyndi,
fyrir drengskap
og dagfarsprýði
er einkum einkendu
æfi þína.
Minning þín mun
í mörgu hjarta
hlýjurn hugsunum
hjúpuð geymast.
Andi drottins
þinn anda blessi
og gleðji þína
grátnu vini. M. A. G.