Skinfaxi - 01.05.1923, Síða 3
SKINFAXI
3
Héraðsþing S. U. A. H,
Árið 1923, þriðjudaginn 20. febr. var
Héraðsþing S. U. A. H. sett og haldið
að Reykjum á Reykjabraut. Þingið setti
formaður Sambandsins Bjarni O. Frímanns-
son Hvammi. Nefndi hann til fundarstjóra
Hafstein Pétursson Gunnsteinsstöðum. —
Skrifarar voru kosnir: Bjarni O. Frímanns-
son og Jón Einarsson.
Mættir voru 6 fulltrúar frá 4 félögum.
Þetta var tekið til meðferðar á þinginu:
1. Stjórnin skýrði frá störfum sínum
síðastliðið ár.
2. Reikningar lagðir fram.
3. Samþykt að kjósa 3 manna starfs-
nefnd fyrir þingið.
4. Sundnámið við Reykjalaug og end-
urbætur á henni.
5. Bannmálið og bindindisheit U. M. F.
6. Verðlaunaveitingar í íþróttum á hér-
aðsmótum S. U. A. H.
7. Smíðanámskeið.
8. Hesthússbygging á Blönduósi.
9. Fyrirlestramál.
10. Héraðsmál á næsta vori.
11. Skipulagsskrá Héraðssamkomu-
sjóðsins.
12. Erindi frá félögunum um styrk til
skógræktar.
13. Fj árhagsáætlun.
Miðvikudaginn 21. febrúar var fundi
haldið áfram.
14. Reikningar.
15. Sundnámið við Reykjalaug. Tillög-
ur nefndarinnar samþ. í einu hljóði:
1. Sund sé kent á næsta vori eins og
að undanföru, fáist þátttaka og styrkur til
þess úr sýslusjóði. 2. Stjórn S. U. A. H.
falið að sækja um styrk til sundkensl-
unnar úr sýslusjóði, 100 krónur. Enn-
fremur að annast aðrar framkvæmdir í
málinu. 3. Að stjórn Sambandsins út-
vegi fótbolta til afnota við sundnámið.
16. Endurbætur á Reykjalaug. Tillög-
ur nefndarinnar samþyktar þannig í einu
hljóði:
1. Stjórn S. U. A. H. beiti sér af al-
efli fyrir þvi, að fullkominni aðgerð á
Reykjalaug sé komið í framkvæmd á næsta
sumri, þó því aðeins, að minst helmingur
kostnaðar fáist annarsstaðar að.
2. Héraðsþing felur stjórninni að reka
þetta erindi við sýslunefnd Austur-Húna-
vatnssýslu, að sækja um styrk til þessa
verks, minst helming kostnaðar; ennfrem-
ur að hafa alla umsjón með verkinu í
samráði við sýslunefnd.
3. Stjórn Sambandsins falið að sjá um
að útmældur sé leikvöllur sá, er ábúand-
inn á Reykjum hefir lofað að leggja til.
17. V e r ð 1 au n a v e i t i n g a r í íþrótt-
um. Tillögur nefndarinnar samþ. þannig:
1. S. U. A. ÞI. láti gera, fyrir næsta
vor, verðlaunagripi, sem kept sé um á
Héraðsmótum þess.
a) Fyrir íslenska glímu:
Fyrstu verðlaun: Silfurúrfesti
með kapseli, tengdum saman sex 25-
eyringum; milli þeirra einn hlekkur. Áletr-
nn: S. U. A. H. I. verðl. í ísl. glímu.
Önnur verðlaun: Slifsisnál úr
silfri. Áletrun: ísl. glíma II, verðl. S. U.
A. H.
Þriðju verðlaun: 2 króna pen-
ingur. Áletrun S. U. A. H, ísl. glíma III.
verðl.
Fyrir drengi innan 18 ára, er vega inn-
an 60 kg.:
Fyrstu verðlaun: 2 króna pen-
ingur. Áletrun: S. U. A. H. Isl. glíma II.
fl. I. verðlaun.
Önnur verðlaun: Krónupeningur.
Áletrun S. U. A. H. ísl. glíma. II. fl.
2. verðl.
b. Fyrir kappreiðar:
1. I skeiði: silfurbúin svipa. Áletrun S.
U. A. H., Skeið I, v.
2. I stökki: Silfurbúin svipa. Áletrun:
S. U. A. H. Stökk. I. v.
2. I öðrum íþróttum, sem kept er á