Skinfaxi - 01.05.1923, Page 4
4
SKINFAXI
Skinfaxi
Útgefandi: Samb. Ungmennafél. íslands
12 blöð á ári. Verð 3 krónur. Gjalddagi
fyrir 1. júlí.
Ritstjórn, afgreiðsla og innheimta: Skin-
faxi Reykjavík Pósthólf 516.
mótunum, sé gefin skrifleg viðurkenning
fyrir sigra, undirskrifuð af dómnefndinni;
skal Sambandið láta gera eyðublöð til
þessa.
3. S. U. A. H. haldi bók, sem inn í
sé færð nákvæm skýrsla um íþróttaþátt-
töku á Héraðsmótum, um verðlaunaveit-
ingar, met og fleira. Skal útdráttur úr
þeim skýrslum birtur í Skinfaxa, ef stjórn
Sambandsins þykir við eiga.
4. Stjórninni faliö að‘semja reglur fyrir
verðlaunagripi S. U. A. H. Skal því vera
lokið fyrir næsta vor.
18. Héraðsmót. — Héraðsþing samþ.
að S. U. A. H. beiti sér fyrir Héraðs-
móti á næsta vori. Jafnframt skorar þingið
á félögin að gera sitt ítrasta til þess að
þátttaka í íþróttum verði sem mest og fjöl-
breyttust á mótinu.
19. Skipulag Héraðssamliomusjóðsins.
20. Smíðanámskeið. — Héraðsþingið
sér sér ekki fært, eins og nú stendur fjár-
hagurinn að leggja út í að halda smíða-
námskeið á þessu ári, en felur stjórn S.
U. A. H. að rannsaka málið og koma
með tillögur sínar fyrir næsta Héraðsþing.
21. Hesthúsbygging á Blönduósi. —
Héraðsþingið telur málið svo nauðsynlegt
að það þurfi að komast hið fyrsta í fram-
kvæmd. Iin vegna fjárskorts sér það ekki
fært að ráðast í slíkt nú, en telur ráðleg-
ast að beina málinu til næsta aðalfundar
K. H. og þá á þann hátt að stjórn S. U.
A. H. skrifi hið fyrsta öllum deildarstjór-
um Kaupfélags Húnvetninga, og skori á
þá að beita sér fyrir málinu í deildunum,
og svo á næsta aðalfundi K. H. En skylt
telur þingið S. U. A. H. að vinna mál-
inu alt það gagn sem það sér sér fært.
22. Bannmálið og bindindisheit U. M.
F. — Eftirfarandi tillögur nefndarinnar
samþyktar. 1. Jafnvel þótt undanþága síð-
asta Alþingis frá bannlögunum, væri óhjá
kvæmileg, þá leyfir Héraðsþing S. U. A.
H. sér að skora á hið. háa Alþingi að
framlengja ekki undanþágu þessa, nema í
ítrustu nauðsyn. Iínnfremur að Alþingi
sjái um að endurskoðuð verði reglugerð
um áfengisverslun ríkisins, sem virðist vera
ábótavant. Héraðsþingið skorar á félögin
að vinna kappsamlega að því að fá æsku-
menn á félagssvæðunum til að ganga í
félögin, sérstaklega með tilliti til bindind-
isstarfseminnar, sem þingið verður að telja
fyrsta mál félaganna, eins og nú horfir.
23. Fyrirlestramál. — Héraðs-
þing samþykkir að greiða Kl. Guðmunds-
syni Bólstaðarhlíð 5 kr. á dag meðan
hann er í fyrirlestraferðum. Ennfremur að
kaup fyrirlesarans sé greitt úr sjóði S. U.
A. H., en felur stjórn þess að fara þess
á leit við Samband U. M. F. í. að það
styrki að einhverju leyti fyrirlestrahaldið.
24. Skógræktin. — Stjórn S. U.
A. H. sé falið að útvega, á næsta vori,
deildum Sambandsins og einstökum mönn-
um trjá- og blómaplöntur, eftir pöntunum.
Sömuleiðis að grenslast eftir hjá S. U. M.
F. í. hvort ekki sé unt að það útvegi
trjáplöntur ókeypis.
25. Kosningar. Stjórnarnefndar-
maður í stað Isleifs H. Arnasonar kosinn
Hafsteinn Pétursson, varamaður Páll Krist-
jánsson. Endurskoðendur: Hilmar Á. Frí-
mannsson og Jónatan J. Líndal. I'ram-
kvæmdarnefnd Héraðsmóts: B. O. Frí-
mannsson form., Pétur í>. Einarsson, Páll
Kristjánsson, Jón Einarsson, Bjarni Gests-
son og Eiríkur Magnússon til vara.
Samþykt fjárhagsáætlun fyrir S. U. A.
H. árið 1923.