Skinfaxi - 01.05.1923, Blaðsíða 8
8
SKINFAXI
ar, mundi ekki vera sama aflið, er héldi
sólkerfinu saman. Vera má, hann hafi þeg-
ar sannfærst um það alt í einu. En mjög
efa menn, að sagan sé sönn. En hvað sem
því kann að líða, þá er það talið nokk-
urn veginn víst, að Newton hafi verið
sannfærður um það, árið 1666. Reyndi
hánn þá til að sanna þessa skoðun sína
stærðfræðilega. En honum tókst það ekki.
Hann hafði reynt að sanna, að jörðin gæti
haldið tunglinu á braut sitini. En reikn-
ingurinn sýndi, að jörðin var ekki nánd-
arnærri svo, að hún gæti ráðið við mán-
ann. Newton kom þá ekki til hugar, að
nokkra skekkju væri að finna í mælingu
jarðar, heldur að hér kæmu einhver óþekt
atriði, er rugluðu reikninginn. Fyrir því
gafst hann upp við það að sanna þetta.
Þannig liðu sextán ár. Þá bar svo við,
að franskur stjörnufræðingur einn, Jean
Picard að nafni, tók sér ferð á hendur til
Lundúnaborgar. Flutti hann þar fyrirlestra
við háskólann. Skýrði hann þar frá árangri
nýjustu jarðmælinga. Kvað hann stjarn-
fræðinga hafa nú komist að þeirri vísinda-
legu niðurstöðu, að jörðin væri miklu
stærri en þeir hefðu áður haldið. Isaak
Newton hlýddi á fyrirlestra Picards. Er
svo sagt, að hann ætti bágt með að bíða,
uns Picard hafði lokið fyrirlestrum sínum.
Þráði hann ákaft að komast heim og setj-
ast aftur við þessa sextán ára gömlu
reikningsþraut. Hann neytti hvorki svefns
né matar dag eftir dag, eftir að hann kom
heim. Hann reiknaði í sífellu. Seinast var
hann orðinn svo þreyttur, að hann varð
að gefast upp. Bað hann þá vin sinn. E.
Halley, að ljúka við dæmið. Hann gerði
það, og sannaði stærðfræðilega, að hug-
mynd Newtons var rétt.
Sú er skoðun margra, að hér hafi verið
um innsæi að ræða. Það var innsæi, segja
menn, er veitti Newton innri sannfæringu,
er leiddi til þessarar mikilvægu uppgötv-
unar, er mun halda nafni hans á lofti, um
aldur og æfi. (Frh.)
Sundkennari.
Maður heitir Jón Þorsteinsson, ættaður úr
Borgarfirði. Hann er ungmennafélögum að
mörgu góðu kunnur, meðal annars af sund-
kenslu sinni, sem hann hefir unnið að í
mörg ár.
Síðast liðinn vetur sturtdaði Jón nám
við íþróttaskólann við Ollerup, á Fjóni.
Skóli þessi hefir haft mikið orð á sér
um langt skeið, og mun nú óhætt að telja
hann frægasta leikfimisskóla á Norðurlönd-
um.
Skömmu eftir nýár bar saman fundum
okkar Jóns. Ræddum við margt um ung-
mennafélögin. Var það auðheyrt að hann
hafði mikla trú og eldlegan áhuga á mál-
efnum þeirra.
Nú hefir alþing veitt kennara þessum
1500 kr. námsstyrk, og mun hann því
hafa afráðið að dvelja næsta ár vjð íþrótta-
nám í Noregi og Svíþjóð.
Ungur starfsmaður. Pálmi Einarsson frá
Svalbaröi í Dölum er nýkominn hingað til
bægjarins. Hann hefir stundað búnaðarnám
í Danmörku síðasthðin 4 ár, og lauk kandi-
datsprófi við landbúnaðarháskólann í Höfn,
nú í vor. Hann er fyrsti íslendingurinn,
sem útskrifast eftir hinni nýju reglugerð
skólans. En samkvæmt henni hefir náms-
greinum verið fjölgað og námstíminn lengd-
ur um eitt ár.
LÖg. Jarðræktarlögin nýju hljóta að
skapa tímamót i búnaðarsögu landsins.
Lög þessi fást sér prentuð hjá Búnaðar-
félagi Islands, og hafa verið send öllum
búnaðarfélögum á landinu.
Skinfaxi mun bráðlega benda á hvernig
ungmennafélögin ættu að geta haft mikinn
hag af jarðræktarlögunum.
Eyðublöð. Sambandsstjórn U. M. F. í.
hefir látið prenta skýrslueyðuböð og send-
ir þau öllum félögum, innan sambandsins.
Prentsm. Acta h. f. — 1923