Skinfaxi - 01.02.1928, Qupperneq 2
18
SKINFAXl
tíðahöldin. Ungmennafélagar lial'a samið tillögur uni
þátttöku sína; vorn þœr samþyktar á Sambandsþingi
U. M. F. í. síðastl. vor. Tillögur þessar liafa verið birt-
ar í „Skinfaxa“. þær ínunu þvi kunnar öllum ung-
mennafélögum og mörgum öðrum, sem lesa ritið. Til-
lögur þessar liafa vcrið sendar pingvallanefnd, og skýr-
ingar verið látnar fylgja þeim um starfsemi ungmenna-
félaga í velur, sem miðar að því, að gera þá færari nm
þátttöku i hátíðahöldunum.
Iþróttanámskeið liafa verið haldin i vetur hjá nær
því öllum héraðssamböndum ungmennafélaga, sem eru
í U. M. F. í. Námskeiðin hafa verið stutt, en mörg, og
haldin víða; var það nauðsynlegt, því að með þeim
hætti var liægt að kynnast mörguin unglingum, og fá
þannig hugmynd um, livar líklegustu íþróttamanns-
efnin er að finna; verður því auðvelt að kjósa úrvals-
menn til samæfinga næsta vetur. Allskonar íþróttir
hafa verið kendar á námskeiðum þessum, og reynt að
vekja íþróttaáhuga sem mest. )?ó að það fari að líkum,
að Iþróttasamband íslands ráði mestu um, hvernig
íþróttastarfseminni verðnr hagað árið 1930, telja ung-
mennafélögin sér skylt að duga í. S. í. sem hest við
allar íþróttaiðkanir. Sérstök stnnd hefir þó verið lögð
á íslenska glímu á námskeiðum ungmennafélaga, einla
gera tillögurnar, sem samþyklar voru á síðasta Samb.-
þingi ráð fyrir því, að unginennafélögin sýni glímur
helst bændaglímur á þjóðhátíðinni.
Ilelgi Valtýsson liefir kent þjóðdansa í vetur hér i
Reykjavik, og kendir voru þeir líka á námskeiði, sem
haldið var á Hvitórhakka í vetur. En þjóðdansakenslan
hefir þó orðið minni en þurft hefði að vera, sökum þess
að erfitt er að fá hæfa kennara í þeirri grein, lil þess
að ferðast meðal ungmennafélaga, en líklegt er að þetta
verði hægra næsta vetur, því að margir hafa numið
dansana af Helga. Má ætla að hægt verði að fá ein-
hverja af þeim til kenslunnar.