Skinfaxi - 01.02.1928, Síða 3
SKINFAXI
19
Tryggvi Magnússon listamaður samdi ágæta ritgerð
um þjóðbúhinga karla, og birtist hún í „Skinfaxa“
nokkru fyrir áramót. ]?að er Tryggva að þakka, að
búningar þessir voru gerðir; liann gerði teikningar að
þeim, og hefir athugað alt, sem að þeim lýtur, bæði
fornt og nýtt, mjög nákvæmlega, eins og ritgerðin ber
með sér. Ungmennafélagar hafa því fengið óbrjálaða
hugmynd um búningana. það er því tómlæti einstíik-
linga að kenna, en ekki fræðsluskorti, ef búningarnir
ryðja sér ekki til rúms. Aúðvelt er að fá búningana
saumaða hér i Reykjavík eða snið að þeim, en æski-
legast væri að foringjar ungmennafélaga gengjust fyr-
ir því, að búningarnir yrðu saumaðir sem víðast heima
i sveitum, likt og gerist um annan klæðnað, þvi að án
þess er það óhugsandi, að þeir verði almennir, og síst
má gleyma því, að innlent efni á best við þessa klæða-
gerð. ]?að ætti að verða metnaðarmál æskulýðsins, bæði
karla og kvenna, að ganga i þjóðbúningi á þjóðhátið-
inni 1930. Ef almennur áhugi vaknar fyrir þvi, verð-
ur það auðunnið.
Óvist mun enn um, livort heimilisiðnaðarsýning verð-
ur lialdin í sambandi við þjóðhátíðina, þó gerðu ung-
mennafélagar ráð fyrir þvi i tillögum sinum, að svo
mundi verða, og liafa því mörg félög unnið kappsam-
lega að heimilisiðnaði í vetur, og liafa gert ráð fyrir
að halda lieimilisiðnaðarsýningu í héraði. Gefst þá færi
á að velja bestu munina til þess að senda á þjóðhátíð-
arsýningu.
Ungmennafélagar unnu sjálfhoðavinnu á pingvöll-
um síðastl. vor. Mun þeirri starfsemi verða haldið
áfram á hverju vori til 1930. Héraðsstj. U. M. S. K. hefir
verið falið að sjá um framkvæmd þessa máls í samráði
við sambandsstjórn U. M. F. í. Mun næsta hefti „Skin-
faxa“ segja ger frá því, sem ungmennafélagar og ]?ing-
vallanefnd hafa orðið ásátt um í því máli. G. B.