Skinfaxi - 01.02.1928, Side 6
22
SKINFAXI
verölaunum heiðursskjal. — Dómnefntl skipuðu þeir
Sigurjón Pélursson, glímukappi, Helgi Hjörvar, kenn-
ari og Helgi Yaltýsson, forstjóri. Margir áliorfendur
mæltu það um kappglímu eldra flokksins, að hún væri
sú fegursta, sem sést liefði lengi á þessum slóðum og
þó víðar væri leitað.
Helstu ræðumenn mótsins voru þeir Magnús Jónsson
tiócent og Sigurður Skúlason cand. mag. fró Skálholti.
— Söng á mótinu annaðist 2(5 manna flokkur úr upp-
sveitum Árnessýslu, undir stjórn lir. Sigurðar Ágústs-
sonar frá Birtingaholti. Höfðu þeir lagt á sig mikið
erfiði við að koma saman til æfinga, þar sem þeir eru
dreifðir um Grímsnes, Biskupstungur, Skeið og Hreppa.
Sýnir það enn, sem fyr fórnfýsi ungmennafélaga. Tókst
söngurinn mjög vel og hlutu söngmenn óspart lof móts-
gesta og þakklæti félaga sinna. — Að lokum var stig-
inn tians á glímupallinum nokkurn tíma.
Héraðssambanilið „Skarphéðinn“ sá um móttöku N.
Bukh og íþróttaflokka hans, hér austanfjalls í sumar.
Varð þó minna úr en ætlað var, þvi að flokkurinn fór
ekki nema að Tryggvaskála, en liafði ætlað upp i
prastaskóg og að Sogsfossum. Tíminn entist ekki til
þess. Var flokknum því lialtlið samsæti í Tryggva-
skála. Sigurður Greipsson héraðsstjóri, mætti þar fyrir
hönd „Skarphéðins“. Bukh var hinn ánægðasti yfir
móttökunum þar. Mega U. M. F. þakka það veitinga-
manninum, hr. Guðlaugi pórðarsyni, og ráðskonu
gistihússins, ungfrú Helgu Sigurðardóttur, sem alt vildu
gera til þess að móttakan yrði sem best og fullkomnust,
Idutaðeigandi félögum til sæmdar.
Ungmennamót var i jfrastaskógi 31. júlí, á vegum
U. M. F. 1. )?angað komu fjölda margir ungmennafélag-
ar úr næstu sveitum. Ræður fluttu þeir Jóhannes Jó-
sefsson iþróttakappi, Ásgeir Ásgeirsson fræðslumála-
stjóri o. fl. Mótið hafði verið auglýst fyrir U. M. F. ein-
göngu, en allmargt var þar af öðru fólki. Má það merki-