Skinfaxi - 01.02.1928, Qupperneq 14
30
SKINFAXI
Eg lofa.
Nýlega er út komin bók með þessu nafni. Höf. henn-
ar er Yilh. Bjerregaard. J?ýtt hefir Eirikur J. Eiríks-
son, 16 ára piltur af Eyrarhakka. pýðingin má heita
prýðilega af hendi leyst. Mun það fátítt að svo ungur
maður vinni annað eins verk. — Bókin segir frá skáta-
hreyfingu meðal skóladrengja í Danmörku á fyrstu ár-
um skátahreyfingarinnar þar i landi. Skýrir hún mjög
vel frá félagslífi drengja, lirifning þeirra og baráttu
fyrir áhugamálum. Munu flestir drengir lesa bók
þessa með ánægju, og vel getur hún orðið þeim að
góðu liði. En foreldrum og kennurum er bókin engu
síður nauðsynleg.
Allir sem eitthvað lmgsa um uppeldismál, finna að
tómstundum barna og unglinga er oft illa varið, ekki
síst í þorpum. Mjög skortir á að leiksvið og viðfangs-
efni þau, sem oft eru valin i leik á kaupstaðargötunn
miði að því að göfga og þroska manndóm barna.
Æfingakerfi skáta sýnir börnum og unglingum föst
og ákveðin markmið lil að stefna að, það elur sannan
metnað, eykur fórnfýsi og hjálpfýsi, eykur sjálfs-
bjargarviðleitni og minnir á margar fleiri dygðir, sem
nauðsynlegt er að gróðursetja i hugum æskumanna.
Er furða að kennarar skuli ekki hafa notað æfinga-
kerfi skáta betur en þeir liafa gert i þarfir uppeldisins.
þessi nýútkomna bók um skáta ætti að hvetja þá til
þess, enda segist kostnaðarmaður hennar gefa hana út
í von um að hún megi vekja athygli foreldra og drengja
á skátahreyfingunni, og auka mönnum hlýjan hug til
sjálfsbjargarviðleitni skáta. Vonandi verður bókin að
þeim notum, sem kostnaðarmaður hennar, Aðalsteinn
Sigmundsson skólastjóri, óskar eftir. Hann hefir verið