Skinfaxi - 01.02.1928, Qupperneq 15
SKINFAXI
31
skáti um mörg ár, og telur sig hafa haft mikið gagn
af því.
G. B.
r
Ur ýmsum áttum.
Skilagrein
um gjafir, er eg hefi tekið á móti til prastaskógar ár-
ið 1927: 50 kr. frá U. M. F. „Dagsbrún“, 100 kr. frá
U. M. F. Hrunamanna, 50 kr. frá U. M. F. „Velvakandi“
og 25 kr. frá Jakobínu .Takobsdóttur, Eyrarbakka.
Alls kr. 225.00. Aðalst. Sigmundsson.
Barðstrendingar.
Fátt er af ungmennafélögum í Barðastrandasýslu,
enda er sýslan strjálbygð strandlengja og óhœgt um
samgöngur ibæði á sjó og landi.
J?ó eru þrjú félög i sýslunni í Héraðssambandi Vest-
fjarða: „Vestri“ og „Unglingur“ í Geiradal og „Aftureld-
ing“ í Reykhólasveit. „Afturelding“ gekk í Héraðssamb.
Vestfjarða síðastl. ár. Félag þetta er meðal fjölmenn-
ustu félaga landsins, tclur um 80 meðlimi. „Aftureld-
ing“ hefir ráðist í það stórvirki, að byggja yfirbygða
sundlaug að Reykhólum. Verður það verk liafið nú í
ár. Ráðgert er að verk þetta muni kosta um 7500 krón-
ur. Laugin verður steinsteypt, með timburskúrum. J?ar
getur sundfólk liafst við meðan það ldæðist og afklæðist.
„Afturelding“ mun hafa ráðist í þetta stórvirki í
því trausti, að bæði nærsveitir og ríkissjóður muni
leggja fé til verksins, enda mundi bygging laugarinnar
reynast félaginu ofurel'li að öðrum kosti.
Óhætt er að fullyrða, að ungmennafélög hafa unnið
meira að íþróttum síðustu árin en nokkru sinni áður,