Skinfaxi - 01.02.1928, Side 16
32
SKINFAXI
cnda er J>að ekki nema sjálfsagt, þar eð félögin liafa
haft mikið meiri styrk af almanna fé. íþróttanámskeið,
sem iialdin liafa verið hcr í Reykjavík og víða um
sveitir, eru öflugur þáttur i starfsemi ungmennafélaga.
En þó er vafamál, hvort sundlaugarbyggingar og starf-
ræksla þeirra getur ekki talist enn þýðingarmeira. Hún-
vetningar hafa bygt vandaða laug að Reykjum á Reykja-
braut. Svarfdælsku ungmennafélögin eru að byggja
laug, mjög vandaða, i sínu bygðarlagi, steinsteypta og
yfirbygða, og Dalamenn eru að byggja laug með sama
hætti. Auk þessa eru margar volgar laugar notaðar við
sundnám; eru margar þeirra steinsteyptar og vei frá
þeim gengið. —
Enginn veit bvað margar kynslóðir eiga eftir að
njóta góðs af laugabyggingum ungmennafélaga. En
hitt blandast engum hugur um, að ábugi fyrir sund-
íþrótt fer mjög vaxandi, og er gott til þess að vita, því
að sundið befir oft — og það með réttu — verið kall-
að iþrótt íþróttanna. Enda er sundíþróttin fegurri, nyt-
samari og beilsusamlegri en flestar aðar iþróttir.
Ný félög.
Tvö ný félög gengu nú um siðustu áramót í Héraðs-
sambandið „Skarpbéðinn“, U. M. F. „Baldur“ i Hraun -
gerðisbrepp og IJ. M. F. „Trausti“ undir Eyjafjöllum.
„Skinfaxi“ býður félög þessi velkomin í U. M. F. í.
Nú eru orðin 18 félög i Hérassamb. „Skarphéðinn“.
Vestman n aey ingar.
Ungmennafélag var stofnað i Vestmannaeyjum í vet-
ur. Líklegt er að félag þetta verði brátt fjölment og láti
mikið að sjer kveða, því að ágætir menn bafa tekið að
sér forustu þess, og ekki skortir ungmenni þar í Eyjum.
FÉLAGSPRENTSMIÐJAN