Skinfaxi - 01.03.1929, Blaðsíða 3
SKINPAXI
35
landsmanna, eftir því sem vér fáum áorkað. Þaó er ekki
nÓK að ræða og rita urn merk mál, og samþykkja til-
lögur likar eða eins ár eftir ár og hafast ekki annað að.
Þegar einstaklingar eða félög samþykkja tillögur tii
framkvæmiá í einhverju máli, og framfylgja þeim ekki,
hafa þau svikið gefin loforð, og er það talinn Ijótur Iðst-
ur, og ungmennafélögum ilia sæinandi.
Árið 1907 samþykti sambandsþingið að gangast fyrir
útbreiðslu litklæðanna, en í tuttugu ár varð ekki vart við
að nokkur hreifði hönd eða fót til þess. 1927 var þetta
mál endurvakið og kom þá ungm.fél. ekkert við. Þó
fór svo, að sama árið samþykti sambandsþingið aftur,
að vinna að útbreiðslu þjóðbúningsins, en sáralítið hefir
verið aðhafst. Þó búningurinn hafi dálítið útbreiðst, þá
er það ekki eingöngu að þakka ungmennafélögunum.
Ekki er nú nema tæpt ár til þess mikla árs 1930, og
þar eiga ungmennafélagar að koma fram sem sérstæð
heild og íylkja þar liði; og vilji þeir að nokkur maður
gefi þeiin gaum, og vilji þeir sanna það, að þeir séu
þjóðræknir menn í þjóðlegum félagsskap, og eigi að
heita ungmennafélagar, þá eru þeir skyldugir til að
mæta þar á þjóðbúningi. Og í raun og veru ber okkur
uugmennafélögum siðferöisleg skylda til þess að klæð-
ast þjóðbúningnuin, að minsta kosti hvenær sem við
komum fram undir nafni ungm.íélaga.
Hjörtur Björnsson
frá Skálabrekku.
Prentvilla
hefir orðið i greininni „Litast um 1. des. 1928“ —
í 2. h. þ. ár, bls. 23. .10. línu að neðan: stendur sorfna
steina og hóla, i stað sorfna steina,og hála. — Einnig
hefði misskrifast i handriti (Sig. Greipss.), greinarinnar
1930, 7. h. f. á., bls. 107, stendur færu 100 manns, í
stað 1000 manns. — Hvort tveggja hjer með beðið af-
sökunar á og leiðnéttingar.