Skinfaxi - 01.03.1929, Side 8
40
SKINFAXI
og svo eru allar konurnar, 10—20 kvennfélðg t. d. og
auðvitað fjöldi karla, sem mér er ðkunnugt um, en
sem eg veit að hjálpa til, ef þið gangið á undan.
Það fylgja allir fúslega ðtrauðum og ötulum forgöngn-
mönnum, sem hafa lag á að kom góðu skipulagi á og
marka skýra og greinilega stefnu.
Það vantar ekki, að margt fallegt sé til af handa-
vinnu á Vestfjörðum. Bg hefi t. d. óviða eða janfvel
hvergi á íslandi, séð jafn mikið af fallegum gömluru
munum, og þykist eg þess fullviss, að það eimi eim
viða eftir af þeim vinnubrögðum — enda hefi eg séð
þess ljós merki. Eg vona að „Skinfaxi" sem nú er sest-
ur að í höfuðstað Vesturlands, iaki þetta sýningarmál
til rækilegrar athugunar I vetur, sömuleiðis héraðs- og
fjórðungsþingin. Þegar allir þeir visu menn athuga málið,
finna þeir auðveldlega út hvað aðallega skuli sýna i
hverju héraði, eða frá Vestfjörðum i heild, eitthvað það
sem auðkenni svæðið sérstaklega. Það sem sýningunni
I Björgvin i sumar var sérstaklega fundið til foráttu var,
að heildarsvip vatnaði, deildirnar urðu samtlningslegar,
fanst gagnrýnendum. Hjá því má komast með því að
skifta verkum ineð sér: Ein sýslan tekur t. d. ýmisleg-
an þeltóskap sem aðalsýnishorn af vinnubrögðum hér-
aðsins (S.-Þingeyingar), Önnur alt viðvíkjandi reiðskap,
þriðja hraðskyttuvefnað, fjórða alt sem bátaútgerð við-
vlkur og talist getur til h. iðnaðar, fimta salún og tog-
tóskap. Að sjálfsögðu má þó hafa aukadeildir, eins og
t. d., ef Mývetningar sýndu ýmislegt það sem silungs-
veiði þeirra snertir. Þá ætti sú hugmynd, sem eitt sinn
var sett fram af einum merkispresti landsins, skilið að
vera nefnd i þessu sambandi: að á sýningu ætti að
vera deild með alt það til búsins, úti og inni, sem unn-
ið gæti verið af karli og konu, er ætla að reisa bú.
Það verður a. m. k. jafnan að hafa það hugfast, að
sýningarmunir séu frá bæði körlum og konum, karl-
mennirnir mega ekki sleppa, og treysti eg þrímenning-
unum til að muna það. —- Til þess að hafa samvinnu