Skinfaxi - 01.03.1929, Qupperneq 16
4« SKINFAX!
hjeraössamb. samhl. skattgreiðslu, gefið upplýsingar um
tölu skattskvldra fjelagsm. i hverju fjelagi þess sambands-
Greitt hafa andvirði Skinfaxa, (sem skatt til samb.
U. M. F. ísl.), fyrir árið 1928, til afgreiðslu blaðsins
(sambandsritara): í Hsb. Vestfjarða 8 fjelög: Umf. „Ár-
vakur“, „Vorblóm“, Mýrahrepps“, „Bifröst“, „Ungling-
ur“, „Framar“, „Ve»tri“ og „Þróttur“. I Hsb. Eyjafjarð-
ar 8 fjelög: Umf. „Akureyrar“, „Reynir\ „Saurbæjarhr.**,
„Svarfdæla“, „Framtíðin", „Þorsteinn Svörfuðui“, „Árroð-
inn“ og „Dagsbrún“. — Öll fjelögin í Hsb. Dalmanna:
Umf. „Ólafur Pái“, „Unnur Djúpauðga“, „Dögun\
„Stfarrían“ og „Ciræður“. Ýms ðnnur fjelög munu hafa
sent gjaldið til sambandsfjehirðis og verður slðar skýrt
frá. — Alls þessa er hjer með þökkum getið.
En þessa að auki ber að minna á: Þau fjelög sem
enn eiga ógreidd gjöld sín til sambandsíns eru beðin
hið fyrsta, er möguleikar leifa, að gera skil þeirra. A
það má lýta að skattur þessi er að fullu endurgreiddur
frá sambandinu með Skinfaxa, sem að rjettu bóksölu-
ver(Si kostar hálfu meira (3 krónur).
Margir einstakir kaupendur blaðsins skulda og einn
eða fleiri árganga og eru þeir einnig vinsamlega beðnir
að borga hið fyrsta.
Bending. A það skal einstökum fjelögum bent —
öllum sem I eru hjeraðssamböndum — að skýrslur sín-
ar eiga þau að senda til hjeraðsstjórna, hvert í sínu
sambandi en ekki til Samoandsstjórnar U. M. F. íslands,
sem eiustaka fjelög hafa gert. Aðeins þau þrjú fjelög
sem eru I Samb. U. M. F. í. án þess að vera í hjer-
aðss.atnböndum eiga að senda skýrslur beint til Sam-
bandsstjórnar. — Ennfremur ber gaumgæfilega að at-
huga að ártal má ekkl gleima að setja á skýrslurnar.
Guðm. J.lfrá Mosdal.
Prentsmíftja VeBturlands ísafirði.