Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.04.1929, Qupperneq 2

Skinfaxi - 01.04.1929, Qupperneq 2
SKINFAXI SO brjósli sér. Bergmálið, sem ungrnennafélögin hljóta að vekja í uppvaxandi kynslóð, á að enduróma í vonum og vaxtrarþrám afkomendanna, svo framarlega, sem engu verður snúið öfugt, af því, sem nú stefnir til um- bóta í lifsstarfi félagsskaparins. En þess ber að gæta, að framsókn „Vormanna ís- lands“ er ekki aðeins fólgin í því, að nema ný lönd, og tileinka sér „Verðandann“ í umbótastarfi nútímans, held- ur er framsóknin jafnframt háð því sköpunarlögmáli, sem hvert þjóðfélag hlýtur óhjákvæmiiega að byggjast á, og sem er í því fólgið, að varðveita vel alit, sem hefir þjóðlegt gildi, og horfir þjóðerninu til styrktar. Jafnframt og félögin sækja fram með umbætur sínar, þurfa þau að vera á verði, og gæta „fenginsfjár“, þess er liðinn tími hefir fengið okkur í hendur, í gegnum margháttaða baráttu formæðra- og forfeðrakynslóðanna. Eitt af þýðingarrniklum atriðum hverrar þjóðar, mun ávalt verða talinn klæðaburður hennar, og það vildi eg í þessu sambandi örlítið minnast á. í gegnum klæða- burðinn má ekki aðeins lesa þjóðernisstyrkleik og vérnd- arhug einstaklinganna, gagnvart því, sem þjóðlegt er, heldur jafnframt listfengi og samræmi við þau lögmál, sem náttúra viðkomandi lands hefir að bjóða. „Nú getur hver og einn skygnst um sína sveit“. — Og víst er ástæða til að spyrja: Hvernig fullnægja ung- mennafélagar íslands hinurn þjóðlegu atriðum I klæða- burði? Standa ungmennafél. íslands á verði gegn aðkomandi tildri og tisku, setn nú er að hertaka hugi uppvaxandi fólks, bæði í klæöaburði og öðru? Svörin við þessum spurningum verða, því miður, neilcvæð. Pjöldinn af uppvaxandi íslendingum, og því miður ungmennafélögum líka, eru að verða að fórnarlömbum á altari hinnar „glæstu froðu“, yfirborðsmenningarinnar, — sem hvorki spyr um þjóðerni, lífsgildi né önnur verð- mæti, sem livert þjóðfélag lilýtur þó að standa eða falla með. — Klæðaburður okkar íslendinga, einkum

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.