Skinfaxi - 01.04.1929, Page 3
SKINFAXl
51
þó hins uppvaxancli kveníólks, er mjög óþjóölegur, og
langt frá því aö vera sanikvæmur lögmáli heilsufræö-
innar.
Eða hvað eiga menn að hugsa og segja, er þeir
sjá hópa af ungum stúlkum nútímans bera klæðnað,
bæði að efni og formi sunnan úr hitabeltisföndum, að
ógleymdu öllu því „pírumpári" „krullujárna", hárkamba
og „púðurs“, sem tómahljóð hégómagirninnar útheimtir,
til þess að fullnægja hinu hraðskreiða auglýsingaskrumi,
sem nútímakynslóðin virðist vera svo mjög haldin af.
„Alt varð útbreiðsluhjóm,
lífið auglýsitig tóm.“
Eitt gleggsta gullaldareinkenni ísl. var: drengskap-
urinn. — Frá þeirri manngildislincl fortíðarinnar, væri
nútíðar kyhslóðinni holt að teiga í sig hugrekki og sann-
leiksþor, til að fylgja fast frarn þeim umbótahugsjónum
sem skapa þjóðinni rauntrygga kjölfestu. Og ekki þekki
eg neinar lífsfrjórri hugsjónir en þær, sem ungmennafé-
lögin hafa lofað að beita sér fyrir, í sínu þjóðræktar-
starfi.
Drengskapur okkar verður prófaður í þvi, hve vel við
efnum getin Ioforð, í stefnuskráratriðum hinnar viðtæku
æskulýðsstarfsemi ungmennafélaganna. — Enginn má
gerast þar þjóðernislegur liðhlaupi.
Nú er að sjálfsögðu mikið rætt og ritað um hina
„stóru stund“: 1000 ára afmæli Alþingis 19a0.
Hvernig hugsa ungmennafélög íslands að korna þar
fram ?
Ekki með tildurshugsanir, í tildursfllkum? Nei, „Vor-
mönnum íslands'1 ber fyrst og fremst skylda til, að sýna
og sanna hina raunverulegu lifandi mynd þjóðernis-
legs sjálfstæðis. Engan rauntryggari grundvöll geta ung-
mennafél. lagt til undirbúnings hinnar stóru prófstundar
þjóðarinnar 1930, en þann, að fylkja sér sainan um
allsherjarátak til þjóðernisvakningar, sem mun endast